
Eyþór Harðarson telur ekki þörf á óháðri úttekt á verklagi Vestmannaeyjabæjar þótt innviðaráðuneytið hafi úrskurðað þrjár uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins ólögmætar á skömmum tíma. Oddvitar Eyjalistans og Miðflokksins svöruðu spurningum Eyjafrétta ekki efnislega og vísuðu til trúnaðar.
Eyjafréttir óskuðu eftir afstöðu oddvita flokkanna í bæjarstjórn Vestmannaeyja til stjórnsýslulegrar og pólitískrar eftirfylgni úrskurðanna þriggja.
Spurningarnar lutu meðal annars að upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa, því hvort úrskurðirnir hefðu verið teknir fyrir með fullnægjandi hætti, hvort tilefni væri til óháðrar úttektar á verklagi bæjarins og afstöðu oddvitanna til mögulegrar dómsmeðferðar.
Ekki var óskað eftir upplýsingum um einstaklingana sem málin varða eða önnur persónuleg atriði einstakra starfsmannamála.
Eyþór Harðarson svaraði öllum fimm spurningum Eyjafrétta. Aðspurður hvenær hann hefði fyrst fengið upplýsingar um úrskurðina og hvort hann hefði fengið aðgang að þeim eða kynningu á niðurstöðum þeirra sagði hann:
„Þar sem ég sit í bæjarráði hefur verið upplýst um stöðu starfsmannamála hjá Vestmannaeyjabæ undir trúnaðarmálum reglulega þegar tilefni er til.“
Eyþór tilgreindi ekki hvenær hann fékk fyrst upplýsingar um úrskurðina né hvort hann hefði fengið þá afhenta. Hann telur hins vegar að málin hafi verið kynnt með fullnægjandi hætti fyrir kjörnum fulltrúum.
„Já, ég tel að úrskurðirnir hafi verið nægilega vel kynntir fyrir bæjarráði, en þar eiga þessi mál heima hvað varðar kjörna fulltrúa,“ segir Eyþór.
Eyþór telur úrskurðina þrjá ekki kalla á heildstæða eða óháða úttekt á verklagi sveitarfélagsins við meðferð starfsmannamála.
„Nei, ég tel að faglega sé unnið að starfsmannamálum hjá Vestmannaeyjabæ og tel ekki þörf á slíkri óháðri úttekt í kjölfar þessara mála.“
Aðspurður hvort upplýsa ætti bæjarstjórn og almenning um breytingar á verklagi, ábyrgðarskiptingu eða aðkomu lögfræðiráðgjafa sagði Eyþór:
„Ef þeir starfsmenn hjá Vestmannaeyjabæ sem fara með þennan viðkvæma málaflokk gera breytingar á verklagi eða ábyrgðarskiptingu í kjölfar þessara mála, þá er auðvitað sjálfsagt að kjörnum fulltrúum sé haldið upplýstum.“
Í svarinu kemur ekki fram hvort Eyþór telji að almenningur eigi einnig að fá upplýsingar um slíkar breytingar.
Vestmannaeyjabær hefur áður greint frá því að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort niðurstöður úrskurðanna verði bornar undir dómstóla.
Eyþór segist ekki myndu andmæla dómsmeðferð teldu stjórnendur starfsmannamála ástæðu til hennar.
„Það hefur margsinnis komið fram í umræðu um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna að uppsögn ráðningarsamnings starfsmanns getur verið mjög flókin og oft á tíðum ómöguleg án þess að láta dómstóla leiða málið til lykta. Ef yfirmenn starfsmannamála hjá Vestmannaeyjabæ telja ástæðu til að láta reyna á niðurstöður ráðuneytisins fyrir dómstólum, þá mun ég ekki andmæla því,“ segir Eyþór.
Arndís María Kjartansdóttir, oddviti Eyjalistans, segist hafa verið upplýst um úrskurðina fljótlega eftir að þeir lágu fyrir. Hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig og vísaði til trúnaðar.
„Ég var upplýst um úrskurðina fljótlega eftir að þeir lágu fyrir en að öðru leyti mun ég ekki tjá mig um trúnaðarmál sem eru í farvegi og hafa ekki verið til lykta leidd hjá sveitarfélaginu,“ sagði Arndís María.
Hún svaraði því ekki spurningum um hvort málin hefðu fengið fullnægjandi umfjöllun á vettvangi kjörinna fulltrúa, hvort gera ætti óháða úttekt á verklagi, upplýsingagjöf til bæjarstjórnar og almennings eða mögulega dómsmeðferð.
Jón Þór Guðjónsson, oddviti Miðflokksins í Vestmannaeyjum, svaraði engri af fimm spurningum Eyjafrétta efnislega.
„Takk fyrir spurningarnar, að svo stöddu get ég ekki tjáð mig um trúnaðarmál,“ sagði Jón Þór í svari sínu.
Spurningarnar til oddvitanna vörðuðu ekki efni einstakra starfsmannamála heldur almennt pólitískt eftirlit, upplýsingagjöf, verklag sveitarfélagsins og mögulega dómsmeðferð.
Innviðaráðuneytið hefur staðfest að þrjár uppsagnir starfsmanna Vestmannaeyjabæjar hafi verið úrskurðaðar ólögmætar á árinu. Úrskurðirnir voru kveðnir upp 11. júní, 4. ágúst og 28. ágúst.
Vestmannaeyjabær hefur lýst sig ósammála lagamati ráðuneytisins að því marki sem úrskurðirnir byggja á túlkun þess á þeim reglum sem giltu um málin. Bærinn hefur jafnframt sagt að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort látið verði reyna á niðurstöðurnar fyrir dómstólum.
Sveitarfélagið hefur ekki viljað greina frá því hvort úrskurðirnir hafi leitt til breytinga á verklagi og hefur tilkynnt Eyjafréttum að það muni ekki svara frekari fyrirspurnum um málin meðan afstaða til mögulegrar frekari málsmeðferðar liggur ekki fyrir.
Þessu tengt:
Vestmannaeyjabær er ósammála lagamati innviðaráðuneytisins í þremur úrskurðum þar sem uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins voru taldar ólögmætar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort látið verði reyna á niðurstöðurnar fyrir dómstólum. Þetta kemur fram í svörum Vestmannaeyjabæjar við fyrirspurn Eyjafrétta. Þar staðfestir bærinn jafnframt að þriðji úrskurðurinn hafi borist 28. ágúst síðastliðinn. Bærinn upplýsir ekki hvort […]