Heimaeyjargosið í nýrri glæpasögu Margrétar S. Höskuldsdóttur

Margrét S. Höskuldsdóttir les úr nýrri glæpasögu sinni, Eldur í öskunni leynist, á Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Örlög þriggja systkina sem yfirgefa Heimaey í gosinu 1973 fléttast saman við dularfullt sakamál á Vestfjörðum. Rithöfundurinn Margrét S. Höskuldsdóttir verður meðal fjögurra höfunda sem kynna nýjustu verk sín og lesa úr bókum sínum í Sagnheimum í Safnahúsinu laugardaginn […]