Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Guðný Geirsdóttir. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Knattspyrnukonan Guðný Geirsdóttir hefur ákveðið að leggja markmannshanskana á hilluna eftir langan feril í meistaraflokki. Guðný greindi frá ákvörðuninni í færslu á Instagram.

Guðný hefur leikið stærstan hluta ferils síns með ÍBV og varð bikarmeistari með liðinu árið 2017. Hún lék 15 leiki í Bestu deild kvenna í sumar þegar ÍBV hafnaði í þriðja sæti sem nýliði í deildinni. Guðný átti gott tímabil og var í nokkur skipti valin í lið umferðarinnar.

Guðný lék einnig með Selfossi sumarið 2021, en hún var þar á láni frá ÍBV og lék tíu leiki í efstu deild með liðinu.

Í færslu sinni á Instagram segir Guðný að ákvörðunin hafi verið erfið, en hún sé þakklát fyrir árin í boltanum.

„Ég hef tekið þá erfiðu ákvörðun að segja skilið við markmannshanskana. Fyrr í vikunni ákvað ég að leikurinn á föstudag yrði minn síðasti á ferlinum. Ég er ótrúlega þakklát og stolt af þessum tíma í mínu lífi en þessi ákvörðun hefur verið lengi á leiðinni.“

Hún hafði upphaflega ætlað sér að hætta eftir tímabilið 2022, en handarbrot varð til þess að hún frestaði þeirri ákvörðun. Árið eftir var hún kölluð upp í landsliðið eftir gott tímabil, þrátt fyrir að ÍBV félli úr Bestu deildinni.

Guðný ákvað svo að halda áfram með liðinu og tók þátt í endurkomu þess í efstu deild. Í sumar hafnaði ÍBV í þriðja sæti Bestu deildarinnar eftir að hafa tryggt sér sæti í deildinni á ný með sigri í Lengjudeildinni í fyrra.

„Líklega hárrétt ákvörðun þar sem við tróðum nokkrum sokkum og enduðum í þriðja sæti deildarinnar,“ segir Guðný.

Að lokum þakkar hún ÍBV og öllum þeim sem hafa stutt hana í gegnum árin og segist afar þakklát fyrir þennan kafla í lífi sínu.

Guðný í leik með ÍBV árið 2024. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.
Guðný hefur verið einn af leiðtogum liðsins undanfarin ár. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Nýjustu fréttir

Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Heimaeyjargosið í nýrri glæpasögu Margrétar S. Höskuldsdóttur
Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.