Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Auðunn Haraldsson
Auðunn Haraldsson við skákborðið. Hann mun kenna fullorðnum byrjendum á námskeiði Taflfélags Vestmannaeyja sem hefst 2. nóvember. Mynd/aðsend.

Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst hjá Taflfélagi Vestmannaeyja mánudaginn 2. nóvember og stendur til 9. desember. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 20–21 í taflheimilinu að Heiðarvegi 9a.

Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja taka sín fyrstu skref í skák og þeim sem vilja rifja upp gamla takta. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og þátttakendur þurfa ekki að taka neitt með sér. Þótt námskeiðið sé fyrst og fremst ætlað fullorðnum er lágmarksaldur 13 ár. Foreldrar og unglingar geta því komið saman og útkljáð helstu deilumál vikunnar við skákborðið.

Að námskeiði loknu er stefnt að því að þátttakendur þekki grunnatriði skákarinnar og hafi öðlast betri tilfinningu fyrir leiknum. Umfram allt er markmiðið þó að virkja leikgleðina og keppnisskapið.

Aðaláherslan verður á að tefla og að minnsta kosti 60% kennslutímans fara í taflmennsku. Í taflheimilinu er góð setuaðstaða, heitt á könnunni og nýr skjár sem nýtist við kennsluna.

Kennari námskeiðsins er Auðunn Haraldsson, tónlistarkennari og skákkennari hjá Taflfélagi Vestmannaeyja og í grunnskólunum tveimur. Hann hefur tekið þátt í Skákþingi Vestmannaeyja undanfarin tvö ár og lauk síðasta haust námskeiði sem veitti honum kennsluréttindi frá Evrópska skáksambandinu (European Chess Union).

Auðunn byrjaði sjálfur ekki að tefla af krafti fyrr en í háskólanámi og þekkir því af eigin reynslu gildi þess að fullorðnir hafi vettvang til að kynnast grunnatriðum skákarinnar.

Námskeiðsgjaldið er 19.900 kr. Skipuleggjendur benda á að mörg stéttarfélög styrki frístundanámskeið og hvetja þátttakendur til að kanna rétt sinn hjá eigin félagi.

Skráning og frekari upplýsingar eru á kennsluvefur.vercel.app/namskeid.

Nýjustu fréttir

Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Heimaeyjargosið í nýrri glæpasögu Margrétar S. Höskuldsdóttur
Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.