Blásið til sóknar í tónlistinni
Við undirritun nýs samstarfssamnings um starfsemi Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja. Samningurinn tryggir sveitinni árlegan rekstrarstyrk frá bænum. Mynd/Vestmannaeyjabær

Vestmannaeyjabær og Tónlistarskóli Vestmannaeyja undirrituðu í dag nýjan samstarfssamning um starfsemi Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja. Á sama tíma hefur nemendum Tónlistarskólans fjölgað og eru þeir nú rúmlega 130. Enn eru laus pláss í söngnámi og á málmblásturshljóðfæri.

Þetta kemur fram í fréttum á vef Vestmannaeyjabæjar. Samstarfssamningnum er ætlað að efla samstarfið og styrkja umgjörð um starf Skólalúðrasveitarinnar til framtíðar.

Samkvæmt samningnum veitir bærinn sveitinni árlegan rekstrarstyrk. Á móti tekur hún þátt í menningar- og samfélagsviðburðum, meðal annars við athöfn í tengslum við bæjarlistamann Vestmannaeyja, á safnahelgi, við skólaslit Grunnskóla Vestmannaeyja og á Barnamenningarhátíð.

Tíu nemendur á landsmóti

Starf Skólalúðrasveitarinnar er komið á fullt. Nýverið tóku tíu krakkar úr sveitinni þátt í landsmóti C-sveita í Reykjanesbæ, en þær eru skipaðar elstu nemendum skólasveita. Þar æfðu þau og léku ásamt á þriðja hundrað börnum víðs vegar að af landinu.

Sveitin sækir landsmót, kemur fram við ýmis tækifæri heima í Eyjum og fer annað hvert ár utan til tónleikahalds. Nemendur í námi á blásturshljóðfæri og slagverk eiga möguleika á að komast í sveitina og eru nú laus pláss fyrir bæði byrjendur og lengra komna.

Laus pláss og bætt aðgengi

Skólastarf Tónlistarskólans hófst í lok ágúst og hefur samkvæmt frétt bæjarins farið vel af stað. Boðið er upp á nám á flest hljóðfæri, söng, tónfræðigreinar og samspil. Biðlisti er í píanónám en auðveldara er að komast að í söng og á önnur hljóðfæri. Sérstaklega eru laus pláss í söngnámi og á málmblásturshljóðfæri, svo sem trompet og básúnu. Sótt er um á umsóknarvef skólans.

Húsnæði skólans hefur jafnframt verið endurbætt. Skipt hefur verið um gólfefni og málað að innan í björtum litum. Þá er kominn nýr inngangur með aðgengi fyrir fatlað fólk, lyfta og aðgengilegt salerni.

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.