Kiwanisklúbburinn Helgafell afhenti nýverið samfélagslögreglunni í Vestmannaeyjum styrk til kaupa á sýnileika- og kynningarbúnaði fyrir börn og ungmenni. Frá þessu greinir klúbburinn í tilkynningu.
Búnaðurinn verður nýttur í forvarnar- og fræðslustarfi samfélagslögreglunnar, meðal annars í heimsóknum í grunnskóla, leikskóla, Heimaey vinnu- og hæfingarstöð og íþróttafélög.
Fulltrúar samfélagslögreglunnar þökkuðu klúbbnum fyrir stuðninginn og sögðu styrkinn koma sér vel. Þörf hafi verið á að endurnýja búnað og varning sem eykur sýnileika og öryggi barna og ungmenna, einkum á dimmasta tíma ársins.
Styrkurinn er liður í áratugalöngum stuðningi Helgafells við samfélagið í Vestmannaeyjum. Klúbburinn leggur sérstaka áherslu á verkefni sem stuðla að velferð barna, ungmenna og fjölskyldna.
Á undanförnum árum hefur klúbburinn meðal annars stutt við Heimaey vinnu- og hæfingarstöð, Bjargið á Hraunbúðum, Krabbavörn Vestmannaeyja og Hugarró. Hann hefur einnig stutt ýmis verkefni fyrir börn og unglinga, þar á meðal kaup á öryggisgleraugum fyrir börn.
Á næstu vikum munu félagar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli ganga í hús í Vestmannaeyjum og selja jólasælgætisöskjur klúbbsins. Salan er eitt helsta fjáröflunarverkefni hans og rennur allur hagnaður af henni til góðgerðarmála og samfélagsverkefna í Eyjum.