Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Flug Ernir Farthegar Jan 2024 Tms Lagf
Frá Vestmannaeyjaflugvelli. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Norlandair hefur opnað fyrir bókanir í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Flugáætlunin gildir frá 1. desember 2026 til 28. febrúar 2027, samkvæmt tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.

Flogið verður fjóra daga vikunnar, á mánudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum. Alls verða fimm ferðir fram og til baka á viku, þar af tvær á fimmtudögum.

Flugáætlun milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja

Flugdagar Flugnúmer Leið Brottför Lending
Mánudagar, fimmtudagar og föstudagar FNA 590 Reykjavík → Vestmannaeyjar 08:15 08:40
Mánudagar, fimmtudagar og föstudagar FNA 591 Vestmannaeyjar → Reykjavík 09:00 09:25
Fimmtudagar FNA 592 Reykjavík → Vestmannaeyjar 16:00 16:25
Fimmtudagar FNA 593 Vestmannaeyjar → Reykjavík 16:45 17:10
Sunnudagar FNA 590 Reykjavík → Vestmannaeyjar 12:20 12:45
Sunnudagar FNA 591 Vestmannaeyjar → Reykjavík 13:05 13:30

Breytingar um jól og áramót

Ekkert flug verður á jóladag, 25. desember, eða nýársdag, 1. janúar. Síðdegisferðirnar falla niður á aðfangadag, 24. desember, og gamlársdag, 31. desember. Morgunferðirnar eru á áætlun báða dagana.

Bókanir fara fram á vef Norlandair.

Afsláttur í gegnum Loftbrú

Vestmannaeyjabær minnir á að íbúar Vestmannaeyja eiga rétt á afsláttarkjörum í gegnum Loftbrú. Nánari upplýsingar eru á Ísland.is.

Nýjustu fréttir

Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Þessi börn vinna lítil kraftaverk á hverjum degi
Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey
Vill gera sérfræðiþekkingu í íþróttum aðgengilegri fyrir alla
Guðmundur Tómas nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar
Útboð heilsuræktar – hvað sýna fjárhagsgögnin?
Vikan í Eyjum: Skipalyftan 45 ára, fullt hús hjá Grýlu og sigur á Akureyri
Walmart skoðar aðstæður í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.