Walmart skoðar aðstæður í Vestmannaeyjum
Jóhann Halldórsson skrifar
Vestmannaeyjar. Skjáskot/út myndbandi Halldórs B. Halldórssonar.
Jóhann Halldórsson

Aðsend grein

Jóhann Halldórsson

Það hlýtur að teljast saga til næsta bæjar þegar að stærsta verslunarkeðja og stærsta fjölskyldufyrirtæki heims skoðar aðstæður í Eyjum.

Sú var raunin í september þegar fulltrúar Sam’s Club, sem er í eigu Walmart, komu til Eyja og kynntu sér landeldi hjá Laxey ásamt öðrum erlendum stórkaupendum. Þetta var fyrsta kynnisferð vottunarsamtakanna ASC til Íslands fyrir slíkan hóp, að því er fram kemur á Auðlindinni.

Sam Walton var afburða sölumaður og vissi að góð saga selur vöruna og eins og saga sem berst til næstu bæja eru það góðu sögurnar sem berast lengst.

Sagan af Laxey og Vestmannaeyjum er enda einstök og aðstæður sem hvergi í heiminum er hægt að líkja eftir. Laxey er nú þegar orðið 4. stærsta landeldisfyrirtæki heims og stefnir óðfluga á toppinn.

Áhersla bæjarfélagsins á stórfellda innviðauppbyggingu, meðal annars með uppbyggingu stórskipakants, spilar líklega stórt hlutverk í komu þessara aðila. Beinar siglingar til Norður-Ameríku styrkja samkeppnisstöðu Laxeyjar og því er mikilvægt að framkvæmdunum sé fylgt eftir af festu, eins og bæjarstjórn hefur lagt mikla áherslu á.

Samfélagsleg sátt (e. social license) skipti Walton miklu máli við að byggja upp traust og stuðla að vexti Walmart. Svipað má segja um Laxey og Eyjamenn. Og eins og hjá Walmart eru stærstu hluthafar í Laxey fjölskyldufyrirtæki.

Hvort það skiptir svo máli er Walton-fjölskyldan auðugasta fjölskylda heims með samanlögð auðæfi upp á 72.000 milljarða króna. Til samanburðar eru fjárlög íslenska ríkisins um 1.700 milljarðar króna.

Fjölskyldan hefur fjárfest í sjávarútvegi og fiskeldi með áherslu á sjálfbærni. S2G Investments, sem nýtur stuðnings fjölskyldunnar og er tæplega 400 milljarðar króna að stærð, hefur lýst yfir áhuga á að fjárfesta í fiskeldisframleiðslu.

Það þarf því ekkert að velta því mikið fyrir sér hvaða þýðingu það getur haft fyrir Laxey og bæjarfélagið í heild ef lax frá Laxey í Eyjum verður á boðstólum hjá þessum risa innan skamms.

Máltækið „líkur sækir líkan heim“ á svo ágætlega við í þessari spennandi sögu. 🏆

 

Jóhann Halldórsson

Nýjustu fréttir

Walmart skoðar aðstæður í Vestmannaeyjum
Íþróttamaður mánaðarins – Edda Dögg Sindradóttir
Grýla er komin með nóg af aðgerðarleysi Jólasveinanna
Áslaug Dís flutti aftur heim með fjölskylduna
ÍBV vann mikilvægan sigur á KA/Þór á Akureyri
Verslum í heimabyggð
Í þjónustu við útgerðir og Eyjamenn í 45 ár
Herjólfur til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.