Kvennalið ÍBV í handbolta vann mikilvægan útisigur á KA/Þór, 32-35, í 10. umferð Olís deildar kvenna í dag. Eyjakonur sýndu góðan karakter í síðari hálfleik og sneru leiknum sér í hag um miðjan hálfleikinn.
ÍBV byrjaði leikinn vel og hafði frumkvæðið á fyrstu mínútunum. Eftir sex mínútna leik leiddu Eyjakonur með einu marki, 4-5. Þá tóku heimakonur við sér, náðu forystunni og héldu henni út fyrri hálfleikinn. Mest náðu þær fjögurra marka forskoti, 14-10, en staðan í hálfleik var 19-16, KA/Þór í vil.
Heimakonur héldu áfram að hafa yfirhöndina í upphafi síðari hálfleiks og leiddu 23-20 eftir átta mínútna leik. Eyjakonur voru þó ekki á því að gefast upp og þegar tæpar 13 mínútur voru til leiksloka höfðu þær snúið stöðunni við og komist yfir, 26-28.
ÍBV hélt forskotinu það sem eftir lifði leiks og hafði náð fjögurra marka forystu, 31-35, þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Eyjakonur fögnuðu að lokum þriggja marka sigri, 32-35.
Sandra Erlingsdóttir fór fyrir sóknarleik ÍBV og var markahæst í leiknum með 12 mörk. Cornelia Linnea Hermansen og Ólöf Maren Bjarnadóttir vörðu hvor um sig fjögur skot í marki ÍBV.
Eftir tíu umferðir situr ÍBV í öðru sæti deildarinnar með 17 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka sem unnu 24-30 sigur á HK fyrr í dag. KA/Þór er í sjöunda sæti með fjögur stig.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 12 mörk, Amelía Dís Einarsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 5, Ásta Björt Júlíusdóttir 4, Andrea Jacobsen 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir.