Erlingur Richardsson og lærisveinar hans í GWD Minden höfðu betur gegn syninum, Elmari Erlingssyni, og félögum hans í Nordhorn-Lingen þegar liðin mættust í 12. umferð þýsku B-deildarinnar í handbolta í kvöld.
Heimamenn í Minden fögnuðu sannfærandi níu marka sigri, 36-27, eftir að hafa leitt með fjórum mörkum í hálfleik, 18-14.
Sigurinn er sá sjöundi í röð hjá Minden í deildinni, en liðið hefur ekki tapað stigi í síðustu sjö leikjum undir stjórn Erlings.
Elmar Erlingsson skoraði tvö mörk úr sjö skotum í leiknum og gaf að auki tvær stoðsendingar.
Minden situr í sjötta sæti deildarinnar með 17 stig, aðeins þremur stigum á eftir toppliði Lübeck-Schwartau. Nordhorn-Lingen fellur hins vegar niður í áttunda sætið eftir tapið og er áfram með 12 stig.