Fjárlög eru oft kynnt sem langar töflur og stórar tölur. En á bak við tölurnar eru brýr sem við keyrum yfir, heilsugæslan sem tekur á móti okkur og ferjan sem flytur fólk milli lands og Eyja. Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 er því meira en bókhald ríkisins. Það endurspeglar hvers konar samfélag við ætlum að byggja.
Suðurland er í mikilli sókn. Hér fjölgar íbúum hratt, hér fara flestir ferðamenn landsins um og hér liggja mikilvægustu samgönguæðar landsins. Það skiptir því miklu að innviðirnir haldi í við vöxtinn. Þegar frumvarpið er lesið með augum Sunnlendinga kemur margt jákvætt í ljós.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að ríkissjóður skili afgangi upp á tæpa 5 milljarða króna árið 2027. Tekjur eru áætlaðar um 1.708 milljarðar og gjöld um 1.704 milljarðar. Þetta eru tímamót. Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla í átta ár samfleytt og uppsafnaður halli þessara ára nemur um 866 milljörðum króna.
Þetta skiptir þetta Sunnlendinga máli, því hallarekstur kostar. Vaxtagjöld ríkisins eru um 136 milljarðar króna á ári, næststærsti útgjaldaliður ríkisins. Hver króna sem fer í vexti nýtist ekki í vegi, heilsugæslu eða skóla. Jafnvægi í ríkisfjármálum styður líka við lægri verðbólgu og vexti, sem kemur heimilum og fyrirtækjum á Suðurlandi beint til góða.
Frumvarpið sameinar aðhald og forgangsröðun. Um 44 milljarðar króna sparast með hagræðingu, einfaldari stjórnsýslu og hagkvæmari innkaupum. Á sama tíma fara tæpir 29 milljarðar í ný og brýn verkefni, meðal annars í vegakerfið, almenningssamgöngur á landsbyggðinni og ný hjúkrunarrými. Þrátt fyrir aðhaldið er fjárfesting ríkisins í efnislegum innviðum um 108 milljarðar króna. Til samgöngumála rennur um 71 milljarður, þar af um 40 milljarðar í beina fjárfestingu.
Suðurland hefur sjaldan séð jafn mikla uppbyggingu í samgöngum og nú. Í júní var nýr kafli hringvegarins um Hornafjörð opnaður: um 19 kílómetrar af nýjum vegi og fjórar nýjar tvíbreiðar brýr, þar á meðal yfir Hornafjarðarfljót. Hringvegurinn styttist um 12 kílómetra og einbreiðum brúm á honum fækkaði um þrjár í einu vetfangi. Framkvæmdin kostaði rúma 10 milljarða króna og var fyrsta samvinnuverkefni Vegagerðarinnar við einkaaðila. Hún sýnir að hægt er að hraða stórum verkefnum með nýjum fjármögnunarleiðum.
Stærsta verkefnið á svæðinu er ný brú yfir Ölfusá. Framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun og gert er ráð fyrir að brúin verði tekin í notkun eftir um tvö ár. Brúin léttir á umferð í gegnum miðbæ Selfoss, eykur öryggi og styttir ferðatíma á einni fjölförnustu leið landsins.
Í sumar var einnig stofnað nýtt innviðafélag ríkisins, Göng og brú ohf., til að hraða mikilvægum samgönguframkvæmdum og tryggja þeim stöðuga fjármögnun. Lögin heimila félaginu að taka yfir bæði Ölfusárbrú og brúna yfir Hornafjarðarfljót, og fjárlagafrumvarpið heimilar að auka hlutafé þess. Þannig skapast farvegur fyrir næstu stórverkefni, án þess að þau þurfi öll að keppa um sama fjárlagaliðinn ár hvert.
Stórframkvæmdir eru þó ekki allt. Fyrir flesta skiptir mestu að vegurinn heim sé öruggur, sléttur og fær allt árið. Ný samgönguáætlun, sem Alþingi samþykkti í júní, setur 361 milljarð króna í samgöngumál á fyrstu fimm árum sínum. Með henni hækkuðu framlög til viðhalds vega úr 12–13 milljörðum á ári í 17,5 milljarða. Stefnt er að því að útrýma öllum einbreiðum brúm á hringveginum, en fáir landshlutar eiga jafn margar slíkar brýr og Suðurland, einkum í Skaftafellssýslum, og að leggja bundið slitlag á um 460 kílómetra af malarvegum.
Almenningssamgöngur skipta líka miklu. Leiðin milli Selfoss og Reykjavíkur er sú fjölfarnasta á Suðurlandi, með yfir 57 þúsund farþega á ári, og í könnun Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sögðust tæp 60% íbúa myndu nota strætó vikulega ef tímatöflur hentuðu. Fjárlagafrumvarpið eykur framlög til almenningssamgangna á landsbyggðinni, sem er mikilvægt skref fyrir fólk sem sækir vinnu og nám milli byggðarlaga.
Enginn þekkir betur hvað samgöngur skipta miklu en Eyjamenn. Síðasta vetur var Landeyjahöfn lokuð mánuðum saman vegna sandburðar og það reyndi á samfélagið allt. Nú er unnið að varanlegri lausn. Frá og með þessu hausti tekur belgíska fyrirtækið Jan de Nul við dýpkun hafnarinnar samkvæmt samningi til 2029, með öflugri búnað og hraðara viðbragði en áður. Samhliða rannsaka danskir sérfræðingar hjá DHI höfnina og leiðir til að bæta hana til frambúðar. Skilaboðin eru skýr: stjórnvöld líta á Landeyjahöfn sem lífæð Vestmannaeyja.
Innviðir eru ekki bara vegir og brýr. Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi verður stækkuð og endurbætt. Byggð verður ný norðurálma, um 5.240 fermetrar, fyrir legudeildir, bráðamóttöku, myndgreiningu og fæðingarþjónustu og eldra húsnæði endurnýjað. Heildarkostnaður er áætlaður 8,5 til 13 milljarðar króna. Fyrsti áfangi, fyrir heilsugæslu, geðheilsuteymi og heimahjúkrun, er fullfjármagnaður og á að ljúka um mitt ár 2027.
Frumvarpið eykur einnig framlög til nýrra hjúkrunarrýma. Til hjúkrunar- og dvalarrýma í heild renna um 83 milljarðar króna. Þetta skiptir miklu á Suðurlandi, þar sem eldri borgurum fjölgar hratt. Þá er heilbrigðis- og öldrunarþjónusta varin sérstaklega í aðhaldinu, með minni hagræðingarkröfu en lögð er á aðra málaflokka.
Eitt sögulegasta verkefnið á landsvísu er að rísa í Árborg. Fyrsta skóflustungan að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni var tekin 20. október. Þetta verður fyrsta fangelsi landsins sem er hannað og byggt sem öryggisfangelsi frá grunni, að norrænni fyrirmynd, og fullbyggt mun það rúma 128 fanga.
Fyrsti áfangi er fullfjármagnaður og kostar um 17,8 milljarða króna. Hann felur í sér klefa fyrir 56 fanga, skólabyggingu, verkstæði, vöruhús og aðalbyggingu, og í fjárlagafrumvarpinu eru um 4 milljarðar króna ætlaðir til fjárfestingar í fullnustumálum á næsta ári. Framkvæmdir eru þegar hafnar.
Fangelsið mun bæta öryggi starfsfólks og fanga og skapa betri aðstæður til menntunar, endurhæfingar og meðferðar. Stærstur hluti húsnæðisins fer einmitt undir endurhæfingu sem undirbýr fólk fyrir líf utan fangelsisins. Fyrir Suðurland þýðir verkefnið líka umsvif á framkvæmdatímanum og varanleg störf þegar fangelsið tekur til starfa.
Fleira í frumvarpinu styrkir byggðirnar sjálfar. Þar er heimild til að kaupa eða leigja húsnæði undir heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands, sem auðveldar ungu fólki úr dreifðari byggðum að sækja nám á Selfossi. Suðurlandið allt hefur kallað eftir þessu árum saman og nú er þetta loksins að verða að veruleika. Heimilt verður að endurlána Byggðastofnun allt að 5 milljarða króna, sem tryggir lánsfé til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. Framlög til sveitarfélaga nema um 39 milljörðum króna og Jöfnunarsjóður hækkar um 17%, meðal annars vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða.
Ríkinu er jafnframt heimilað að semja um uppbyggingu innviða við Jökulsárlón, einn fjölsóttasta ferðamannastað landsins, sem bætir bæði upplifun og öryggi gesta. Og um 4,9 milljarðar króna renna til varna gegn náttúruvá. Suðurland býr við eldfjöll, jökulhlaup og jarðskjálfta, svo þau framlög skipta okkur sérstaklega miklu.
Verkefninu er ekki lokið. Það eru enn einbreiðar brýr, malarvegir og biðlistar sem þarf að vinna á. En stefnan er skýr og hún liggur í rétta átt.
Sandra Sigurðardóttir
Þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi