Viðar kvaddi tónlistarskólann á trommunum - myndir
Sr. Viðar Stefánsson leikur á trommur á burtfarartónleikum sínum á Háaloftinu í Höllinni. Ljósmyndir: Eyjafréttir/Óskar P. Friðriksson
OPF 2
Óskar Pétur
Friðriksson

Sr. Viðar Stefánsson hélt burtfarartónleika á Háaloftinu í Höllinni í gærkvöldi. Með tónleikunum lauk hann námi í trommuslætti við Tónlistarskóla Vestmannaeyja.

Viðar hefur stundað námið undanfarin ár undir leiðsögn Birgis Benediktssonar Nielsen og lauk framhaldsprófi í vor. Samkvæmt tónlistarskólanum er hann fyrsti nemandi skólans til að þreyta framhaldspróf á trommusett.

Nemendur og kennarar á sviðinu

Burtfarartónleikar eru hluti af námslokum nemenda sem ljúka framhaldsprófi við skólann. Með Viðari á tónleikunum lék hljómsveit skipuð nemendum, kennurum og velunnurum Tónlistarskóla Vestmannaeyja.

Óskar P. Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var á Háaloftinu og tók myndir á tónleikunum.

Nýjustu fréttir

Viðar kvaddi tónlistarskólann á trommunum – myndir
Feðgar mætast í þýsku B-deildinni í kvöld
Segja skattóvissu draga úr hringsiglingum
Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto í Vestmannaeyjahöfn
ÍBV steinlá gegn Fram í Eyjum
Frá briminu upp yfir bæinn – myndband
Eyjamenn vilja komast aftur á sigurbraut gegn Fram
Fjárlög 2027 með augum Sunnlendinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.