Gul viðvörun á Suðurlandi á laugardagskvöld
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna suðaustan hvassviðris eða storms á Suðurlandi. Hún tekur gildi klukkan 20 á laugardagskvöld, 21. nóvember, og gildir til klukkan 11 á sunnudagsmorgun. Herjólfur segir útlit fyrir aðstæður til siglinga um Landeyjahöfn næstu daga óhagstætt.

Allar ferðir föstudagskvöldsins enn á áætlun

Herjólfur vekur athygli farþega á því að spáð er vaxandi ölduhæð þegar líður á föstudagskvöldið. Allar ferðir kvöldsins eru enn á áætlun samkvæmt tilkynningu félagsins. Verði breytingar verða þær tilkynntar um leið og þær liggja fyrir.

Veður- og sjólagsspár eru óhagstæðar fyrir siglingar til og frá Landeyjahöfn næstu daga. Herjólfur sendir frá sér tilkynningu um siglingar fyrir klukkan 6 á laugardagsmorgun. Félagið bendir farþegum á að forðast að skilja ökutæki eftir við Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn vegna hættu á að siglingar færist milli hafna.

Hvassast undir Eyjafjöllum og á Reykjanesi

Spáð er suðaustanátt, 15–23 metrum á sekúndu, og rigningu á Suðurlandi. Hvassast verður undir Eyjafjöllum og á Reykjanesi. Við fjöll geta vindhviður farið yfir 35 metra á sekúndu og geta aðstæður því orðið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Gular viðvaranir hafa einnig verið gefnar út fyrir höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið. Nánari upplýsingar má finna á viðvörunarsíðu Veðurstofu Íslands.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun á Suðurlandi á laugardagskvöld
Heimir og Írar mæta Króatíu í umspilinu
Grýla gerir uppreisn fyrir fullu húsi
Viðar kvaddi tónlistarskólann á trommunum – myndir
Feðgar mætast í þýsku B-deildinni í kvöld
Segja skattóvissu draga úr hringsiglingum
Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto í Vestmannaeyjahöfn
ÍBV steinlá gegn Fram í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.