Dæluskipið Sebastiano Caboto er í aðalhlutverki í nýju myndbandi Halldórs B. Halldórssonar úr Vestmannaeyjahöfn. Í myndbandinu, sem ber titilinn „18 nóvember 2026“, sést skipið við hús Vinnslustöðvarinnar og í loftmyndum yfir höfnina og bæinn.
Sebastiano Caboto er á vegum belgíska fyrirtækisins Jan De Nul og vann við dýpkun innsiglingarrennunnar við Hörgaeyrargarð fyrr í nóvember. Dýpkunin er hluti af undirbúningi að styttingu garðsins um allt að 40 metra. Markmiðið er að breikka siglingaleiðina og auka öryggi skipaumferðar um höfnina.
Eins og Eyjafréttir greindu frá í byrjun nóvember gerði Vestmannaeyjabær ráð fyrir að fjarlægja um 50 þúsund rúmmetra úr rennunni. Efnið er nýtt í stæði fyrirhugaðs hafnargarðs utan við Eiðið.