Feðgarnir Erlingur Richardsson og Elmar Erlingsson mætast í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld þegar GWD Minden tekur á móti HSG Nordhorn-Lingen. Erlingur stýrir Minden en Elmar leikur með Nordhorn-Lingen. Leikurinn er í 12. umferð deildarinnar og hefst klukkan 20:00 í Kampa-Halle.
Minden situr í 6. sæti deildarinnar með 15 stig en Nordhorn-Lingen er í 7. sæti með 12 stig.
Elmar gekk til liðs við Nordhorn-Lingen frá ÍBV sumarið 2024 og hefur leikið með liðinu síðan. Hann framlengdi samning sinn við félagið í febrúar síðastliðnum til sumarsins 2027.
Erlingur tók við þjálfun Minden í lok september og hefur liðið unnið alla sex deildarleiki sína undir hans stjórn. Síðasti sigurinn kom á laugardaginn þegar Minden vann TV Emsdetten á útivelli, 29–35.