Heimir og Írar mæta Króatíu í umspilinu
Mynd/Aðsend

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu mæta Króatíu í umspili Þjóðadeildar karla um sæti í A-deild keppninnar.

Dregið var í umspilið í dag en Írland hafnaði í öðru sæti síns riðils í B-deildinni og þarf því að fara í umspil til að eiga möguleika á sæti í A-deildinni.

Umspil um sæti í A-, B- og C-deild Þjóðadeildarinnar fara fram í mars á næsta ári, samhliða 8-liða úrslitum keppninnar. Leikin verða tveggja leikja einvígi þar sem hvort lið fær einn heimaleik.

Drátturinn í Þjóðadeildinni

Umspil um sæti í A-deild

  • Bosnía – Danmörk
  • Írland – Króatía
  • Ungverjaland – Serbía
  • Slóvenía – Wales

 

Umspil um sæti í B-deild

  • Kýpur – N-Makedónía 
  • Eistland – Rúmenía
  • Færeyjar – Georgía
  • Belarús – Ísrael

 

8-liða úrslit Þjóðadeildarinnar 

  • Spánn – Frakkland
  • Noregur – England
  • Holland – Portúgal
  • Belgía – Þýskaland

Nýjustu fréttir

Heimir og Írar mæta Króatíu í umspilinu
Grýla gerir uppreisn fyrir fullu húsi
Viðar kvaddi tónlistarskólann á trommunum – myndir
Feðgar mætast í þýsku B-deildinni í kvöld
Segja skattóvissu draga úr hringsiglingum
Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto í Vestmannaeyjahöfn
ÍBV steinlá gegn Fram í Eyjum
Frá briminu upp yfir bæinn – myndband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.