Í nýju myndbandi Halldórs B. Halldórssonar má sjá brim brotna við Heimaey og snævi þakin fjöll á meginlandinu handan sundsins. Sólin gægist fram úr skýjunum og varpar birtu á sjóinn og hlíðarnar.
Undir lok myndbandsins færist sjónarhornið upp fyrir byggðina. Þar sést yfir flugvöllinn og bæinn, með Heimaklett í baksýn.
Myndbandið er tæpar tvær og hálf mínúta og má sjá hér að neðan.