
Bókanir gera ráð fyrir 37 komum leiðangursskipa til Vestmannaeyja árið 2027, samanborið við 46 í ár og 50 árið 2025. Gangi bókanir eftir fækkar komunum um 26 prósent á tveimur árum. Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, segir óvissu um virðisaukaskatt og tollfrelsi hafa fælt útgerðir frá hringsiglingum um Ísland.
Samkvæmt tölum sem Sigurður Jökull tók saman fyrir Eyjafréttir voru leiðangursskip rúmlega helmingur skemmtiferðaskipakoma til Eyja í ár. Alls komu skemmtiferðaskip 84 sinnum til Vestmannaeyja árið 2026 og námu hafnartekjur af þeim komum um 142 milljónum króna, samkvæmt yfirliti Cruise Iceland. Á næsta ári eru 73 komur skemmtiferðaskipa bókaðar, þar af 37 komur leiðangursskipa.
Sigurður Jökull segir að nokkur skipafélög sem hafa haft reglulega viðkomu hér á landi geri ráð fyrir umtalsvert færri komum á næstu árum vegna virðisaukaskatts á hringsiglingar. Hann nefnir frönsku útgerðina Ponant sem dæmi. Hún hefur um árabil gert út leiðangursskip í hringsiglingar um Ísland með Hafnarfjörð sem heimahöfn á meðan á siglingunum stendur.
Í svari sínu til Eyjafrétta tilgreindi Sigurður Jökull engar einstakar ferðir með fyrirhugaðri viðkomu í Vestmannaeyjum sem hefðu fallið niður vegna skattsins.
Sigurður Jökull segir að með breytingu á tollalögum árið 2012 hafi leiðangursskipum verið gert kleift að sigla umhverfis Ísland í fjóra mánuði á ári með farþega sem fljúga til og frá landinu. Að hans sögn hafi fyrirkomulagið stutt við atvinnulíf á fáfarnari viðkomustöðum utan suðvesturhornsins.
Hann segir að í leiðbeinandi bréfi Skattsins árið 2025 hafi komið fram að hringsiglingarnar féllu undir íslenska virðisaukaskattskerfið. Tollfrelsi skipanna hafi hins vegar verið viðhaldið með samþykkt Alþingis í lok sama árs.
Cruise Iceland vill að lögum verði breytt svo leiðangursskip í hringsiglingum njóti sömu kjara og skemmtiferðaskip í millilandasiglingum í allt að fjóra mánuði á ári, bæði hvað varðar virðisaukaskatt og tollmeðferð. Sigurður Jökull segir samtökin eiga í góðu samtali við stjórnvöld, ráðuneyti og Skattinn um málið.