Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir jólaleikritið Grýla gerir uppreisn í dag, föstudaginn 20. nóvember. Uppselt er á sýningar helgarinnar en tvær sýningar verða um þarnæstu helgi, laugardaginn 28. og sunnudaginn 29. nóvember, báðar klukkan 15.
Leikritið er eftir Ölmu Eðvaldsdóttur og fjallar um Grýlu sem hefur séð ein um heimilið í hundruð ára. Nú hefur hún fengið nóg og felur jólasveinunum þrettán að finna kjöt í jólamatinn og óþekkan krakka til að þrífa hellinn.
Verkefnið reynist bræðrunum snúnara en þeir gera ráð fyrir. Sagan gerist á þeim þrettán nóttum sem jólasveinarnir gefa í skóinn.
Alma skrifaði verkið á sínum tíma fyrir Leikfélag Vestmannaeyja. Í kynningu á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að félagið eigi leikritið og sjái sjálft um leikstjórnina til að halda kostnaði við uppsetninguna niðri.
Miðaverð er 4.200 krónur. Hægt er að panta miða í síma 852-1940 eða senda leikfélaginu skilaboð á Messenger, að því er fram kemur á Facebook-síðu félagsins.