„Ég er stoltur af því sem hefur verið byggt upp og þakklátur öllu því góða fólki sem hefur tekið þátt í þessari vegferð,“ segir Stefán Örn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipalyftunnar. Fyrirtækið varð 45 ára þann 14. nóvember síðastliðinn. Á þeim tíma hafa vel yfir þúsund manns starfað hjá því og segir Stefán mannauðinn vera mikilvægustu eign fyrirtækisins.
Skipalyftan var stofnuð 14. nóvember 1981 af eigendum Vélsmiðjunnar Magna og Völundar. Félagið tók formlega við lyftunni og mannvirkjunum sem henni fylgja 1. júní 1982.
Stofnendurnir voru Gunnlaugur Axelsson, Tryggvi Jónsson, Pétur Andersen, Kristján Ólafsson, Þórarinn Sigurðsson, Tryggvi Jónasson, Jón Yngvi Þorgilsson, Njáll Andersen, Erlendur Eyjólfsson og Friðþór Guðlaugsson.
Aðspurður um hvað sé minnisstæðast frá fyrstu árunum nefnir Stefán uppbyggingu öflugs fyrirtækis.
„Það var mikil áskorun að skapa þá þjónustu sem sjávarútvegurinn í Vestmannaeyjum þurfti á að halda. Í upphafi störfuðu um 80 manns í hinu nýja fyrirtæki og mikið að gera. Á þessum 45 árum hafa starfað hjá Skipalyftunni vel yfir 1.000 manns.“
Stefán segir margt standa upp úr þegar litið sé yfir sögu fyrirtækisins. Þar á meðal séu lengingar skipa, yfirbyggingar og smíði nýrra skipsbrúa. Áður höfðu slík verkefni öll verið unnin utan Vestmannaeyja.
„Árið 1998 urðu ákveðin tímamót í sögunni, en þá kláraði Skipalyftan sína fyrstu og einu nýsmíði, þegar dráttarbáturinn Lóðsinn var afhentur eigendum sínum, Vestmannaeyjabæ, og hefur hann þjónað hlutverki sínu vel.“
Þjónustan hefur breyst mikið frá upphafi. Stefán bendir á að sjávarútvegurinn hafi verið stærri hluti atvinnulífsins í Eyjum þegar reksturinn hófst en hann sé í dag. Skipin hafi verið minni og mun fleiri og viðhaldsverkefnin mörg.
„Yfir sumarmánuðina voru oft þrjú til fimm skip í slipp á sama tíma í ýmiss konar viðhaldsverkefnum. Skipin í dag eru hins vegar stærri og tæknivæddari og þeim hefur því eðlilega fækkað.“
Í dag starfar Skipalyftan fyrst og fremst sem plötusmiðja, véla- og renniverkstæði auk þess að þjónusta skip í upptökumannvirkinu. Fyrirtækið heldur einnig úti lager og verslun með vörur tengdar málmiðnaði, sjósókn og veiðum.
Þar fást meðal annars verkfæri, rekstrarvörur og málning og er Skipalyftan söluaðili fyrir BYKO og Flügger. Stefán segir því einnig marga bæjarbúa leita til fyrirtækisins vegna viðhaldsverkefna á heimilum sínum.

Hjá Skipalyftunni starfa nú 35 til 40 manns. Stefán lýsir starfsfólkinu sem öflugum hópi með mikla reynslu og þekkingu á sínu sviði. Tveir starfsmenn hafi verið með frá upphafi og þó nokkrir starfað hjá fyrirtækinu í 40 ár.
„Það segir okkur sitt um tryggðina og tengslin við fyrirtækið. Mannauðurinn er okkar mikilvægasta eign og án okkar frábæra starfsfólks í gegnum tíðina værum við ekki þar sem við erum í dag.“
Afmælinu var fagnað með starfsfólki og mökum þess. Stefán segir fögnuðinn fyrst og fremst hafa verið haldinn til að þakka starfsfólkinu. Jafnframt hafi gefist tækifæri til að rifja upp söguna, minnast þeirra sem lögðu grunninn að fyrirtækinu og gleðjast yfir því sem áunnist hefur.
Stefán segir Skipalyftuna hafa gengið í gegnum bæði góð og mjög krefjandi tímabil. Fyrirtækið hafi þurft að aðlagast breyttum aðstæðum og hann horfir bjartsýnn til framtíðar.
„Það verða alltaf breytingar í sjávarútvegi og atvinnulífinu og við þurfum að vera tilbúin að aðlagast þeim.“
Áfram verði unnið að því að efla þjónustu við útgerðir og aðra viðskiptavini og þróa verslunina.
„Markmiðið er að vera áfram öflugt þjónustufyrirtæki, með frábæra starfsmenn, ánægða viðskiptavini og traustan rekstur. Það er mikilvægt að horfa fram á veginn en jafnframt standa vörð um þá þekkingu og reynslu sem hefur byggst upp á þessum 45 árum,“ segir Stefán.
„Við getum verið stolt af þessum 45 árum og hlökkum til framhaldsins.“


Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá starfsemi Skipalyftunnar og einnig eru nokkrar myndir frá árshátíð félagsins sem haldin var um sl. helgi. Smellið á myndir til að opna þær í fullri upplausn.