Ísfélagið veiddi tæp 18.000 tonn af norsk-íslenskri síld
Heimaey VE er væntanleg til Vestmannaeyja á fimmtudag með fyrsta síldarfarminn af veiðunum vestan við land. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Ísfélagið lauk veiðum á norsk-íslenskri síld um helgina. Skip félagsins eru nú komin á veiðar á íslenskri sumargotssíld vestan við land og er Heimaey væntanleg til Vestmannaeyja á fimmtudag með fyrsta farminn af þeim veiðum.

Ísfélagið hóf veiðar á norsk-íslenskri síld um miðjan september og lauk þeim um síðustu helgi þegar Sigurður landaði á Þórshöfn. Skip félagsins veiddu tæp 18.000 tonn af norsk-íslenskri síld á tímabilinu. Auk þess veiddu þau um 5.000 tonn af íslenskri síld sem var að töluverðu leyti blönduð þeirri norsk-íslensku.

Meira haft fyrir veiðunum í haust

„Við þurftum að hafa meira fyrir þessum veiðum í haust miðað við fyrri ár. Eitthvað var síldin dreifðari og svo var veðrið ekkert alltaf í liði með okkur,“ segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, í svari við fyrirspurn Eyjafrétta.

Norsk-íslenska síldin var unnin á Þórshöfn eins og áður.

Vonast til að ljúka veiðum fyrir jól

Sigurður hélt frá Vestmannaeyjum til síldveiða í morgun. Heimaey er væntanleg til Eyja á morgun, fimmtudag með fyrsta farminn af veiðunum vestan við land.

Ísfélagið á eftir að veiða um 7.000 tonn af íslenskri sumargotssíld og vonast til að ljúka veiðunum fyrir jól. Síldin verður unnin í Vestmannaeyjum og bolfiskvinnsla tekur við á Þórshöfn.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið veiddi tæp 18.000 tonn af norsk-íslenskri síld
Fiskur fjórum sinnum í viku á Breka VE
Styrktarsjóður Landakirkju veitir aðstoð fyrir jólin
Fjölgun brota endurspegli aukið ofbeldi
Eyjakonur mæta Stjörnunni í bikarslag í kvöld
Heimir og Írar fara í umspil í Þjóðadeildinni
Átján framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum
Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.