Verslum í heimabyggð
Mynd/TMS
Hildur Rún Róbertsdóttir

Nú í aðdraganda jóla tel ég nauðsynlegt að minna á mikilvægi þess að við íbúar í Vestmannaeyjum verslum í heimabyggð eins og kostur er. Þetta skrifa ég bæði sem fyrirtækjaeigandi sem og mikil talskona þess að hér ríki bæjarbragur allt árið um kring.

Ég tel mig geta fullyrt að við viljum öll geta sótt helstu þjónustu í heimabyggð allt árið, hvort sem það er að kaupa afmælis eða jólagjafir, endurnýja útifötin á börnin, kaupa jólakjólinn, garn í nýju uppskriftina eða panta tíma í dekur.

Ég vil trúa því að við viljum geta bókað borð á veitingastað í tilefni stórafmæli mömmu, kíkt í ís eftir leikskóla á föstudegi, hoppað í hádegismat með vinnufélögunum eða kíkt í bjór með vinunum.

Bæjarbragurinn felst ekki einungis í öllum þeim fjölda verslana og veitingastaða sem eru starfræktir hér í samfélaginu okkar allt árið, heldur felst hann í ykkur, heimafólkinu sem sækir þjónustuna. Án ykkar liggur bærinn í dvala og það viljum við ekki. Við viljum að allt árið sé hægt að sækja sér fjölbreytta þjónustu í heimabyggð og að hér ríki bæjarbragur.

Ég hvet því öll þau sem hafa tök á, að versla í heimabyggð fyrir jólin sem og á öðrum tímum ársins. Sækjum alla þá fjölbreyttu þjónustu sem stendur okkur til boða því á bakvið hana er fjöldinn allur af fólki sem treystir á ykkur.

Verslum í heimabyggð!

 

Hildur Rún Róbertsdóttir

Fyrirtækjaeigandi

Nýjustu fréttir

Verslum í heimabyggð
Í þjónustu við útgerðir og Eyjamenn í 45 ár
Herjólfur til Þorlákshafnar
ÍBV mætir KA/Þór á Akureyri
Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar í Höllinni á morgun
Feðgarnir mættust í þýsku B-deildinni – Erlingur fagnaði sigri
Gul viðvörun á Suðurlandi á laugardagskvöld
Heimir og Írar mæta Króatíu í umspilinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.