
Eftir vel heppnaða frumsýningu eru almennar sýningar farnar af stað á leikritinu, Grýla gerir uppreisn, hjá Leikfélagi Vestmannaeyja.
Grýla gerir uppreisn er skemmtilegt jólaleikrit sem var sett á svið hjá Leikfélagi Vestmannaeyja fyrir tæpum 20 árum síðan en núna hefur það verið endurgert og fengu nýjir leikstjórar að leika sér aðeins að uppsetningu verksins.
Þær Bryndís Guðjónsdóttir og Aðalheiður Stella Sæmundsdóttir fengu það verðuga verkefni að leikstýra verkinu og það í fyrsta sinn sem þær taka að sér leikstjórn. Þær segja æfingar ekki hafa gengið áfallalaust fyrir sig enda helmingur leikhópsins einnig reynslulaus. Það hefur þó engin áhrif á sýninguna sem hefur fengið mikið lof. Met fjöldi barna kom í prufur fyrir leikritið og vandi að velja hjá Bryndísi og Öllu Stellu, en mikið af efnilegum krökkum fengu hlutverk og hafa fengið að láta ljós sitt skína á æfingum undanfarnar vikur, en nú er alvaran tekin við.
Næstu sýningar eru um næstu helgi, laugardaginn 28. nóvember kl 15:00 og sunnudaginn 29. nóvember kl 15:00. Miðaverð er 4.200 krónur.
Leikstjórarnir höfðu í nægu að snúast fyrir generalprufuna en gáfu sér tíma til að ræða við Svövu Kristínu.
Þú hefur horft á ókeypis kynningu. Gerstu áskrifandi til að horfa á myndbandið í fullri lengd.
Gerast áskrifandi Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn