Gul veðurviðvörun tekur gildi á Suðurlandi klukkan 15 á morgun, fimmtudaginn 26. nóvember, og gildir til miðnættis. Veðurstofa Íslands spáir suðaustan- og austanstormi, 18–25 m/s. Hvassast verður austantil á svæðinu og vindhviður geta sums staðar farið yfir 35 m/s. Veðurstofan varar við varasömu ferðaveðri.
Í hugleiðingum veðurfræðings í morgun kemur fram að djúp lægð nálgist landið úr suðri á fimmtudag. Þá gangi í suðaustan og austan hvassviðri eða storm með rigningu. Á vesturhluta landsins fer þó ekki að hvessa að ráði fyrr en líður á síðdegið.
Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir í öllum landshlutum og er gildistími þeirra mismunandi eftir svæðum. Búist er við úrhellisrigningu á Suðaustur- og Austurlandi. Á Suðausturlandi gildir viðvörun vegna mikillar rigningar frá klukkan 6 til 16 á fimmtudag. Þar má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum og hættu á flóðum og samgöngutruflunum. Vindviðvörun gildir á sama svæði frá klukkan 13 á fimmtudag til klukkan 4 aðfaranótt föstudags.
Aðfaranótt föstudags fer lægðin norður fyrir vestan land og vindur snýst til suðurs með skúrahryðjum. Þegar líður á föstudaginn dregur úr vindi og kólnar, með éljum sunnan- og vestanlands.