Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarins
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri með nemendunum þremur sem teiknuðu myndirnar á jólagjafakort Vestmannaeyjabæjar í ár. Þau sýndu myndirnar í heimsókn fyrsta bekkjar í ráðhúsið. Mynd af vef Vestmannaeyjabæjar.

Þrjár jólamyndir eftir nemendur í 1. bekk í Hamarsskóla prýða jólagjafakort Vestmannaeyjabæjar til starfsmanna í ár. Allar myndir nemendanna verða sýndar í Safnahúsinu frá föstudeginum 27. nóvember.

Nemendurnir heimsóttu ráðhúsið á þriðjudag þar sem Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tók á móti þeim. Hún sagði þeim frá starfsemi bæjarins og hlutverki bæjarstjórnar. Börnin fengu einnig tækifæri til að spyrja hana spurninga.

Fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar að sú hefð hafi skapast á undanförnum árum að nemendur í 1. bekk teikni myndir fyrir jólagjafakort bæjarins. Verkefnið er unnið í samstarfi við Hamarsskóla og í ár voru myndir eftir Míu Mekkin Valgeirsdóttur, Röskvu Hjaltalín í Dali og Storm Héðin Tindsson dregnar út til að prýða kortin.

Allar myndirnar til sýnis í Safnahúsinu

Sýningin opnar föstudaginn 27. nóvember og verður Safnahúsið opið til kl. 18 þann dag. Sama dag verða ljósin tendruð á jólatrénu á Stakkagerðistúni kl. 17. Dagskrá á vef Vestmannaeyjabæjar

Venjulegur opnunartími Safnahússins er kl. 10–17 virka daga og kl. 12–15 á laugardögum.

Nýjustu fréttir

Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarins
Varað við stormi á Suðurlandi á fimmtudag
Herjólfur stefnir á Landeyjahöfn síðdegis
Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Þessi börn vinna lítil kraftaverk á hverjum degi
Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey
Vill gera sérfræðiþekkingu í íþróttum aðgengilegri fyrir alla
Guðmundur Tómas nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.