Herjólfur siglir til og frá Þorlákshöfn síðdegis í dag og þar til annað verður tilkynnt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Brottför frá Vestmannaeyjum er kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45.
Farþegum sem hyggjast ferðast á morgun, fimmtudag, og fyrri hluta föstudags er bent á að veðurspá gefi til kynna að aðstæður til siglinga gætu orðið óhagstæðar. Verði breytingar á áætlun verða þær tilkynntar um leið og þær liggja fyrir.
Farþegar sem ætla að nýta gistirými ferjunnar þurfa að koma með eigin búnað. Jafnframt er minnt á að á þessum árstíma geti þurft að færa siglingar milli hafna og því sé ekki æskilegt að skilja ökutæki eftir í annarri hvorri höfninni.