Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Ekki hefur verið ákveðið hvort niðurstöðurnar verði bornar undir dómstóla :: Vestmannaeyjabær hyggst ekki svara frekari fyrirspurnum um málin að svo stöddu
Mynd/TMS
Vestmannaeyjabær er ósammála lagamati innviðaráðuneytisins í úrskurðunum þremur. Bærinn hefur ekki ákveðið hvort niðurstöðurnar verði bornar undir dómstóla. Mynd: Eyjafréttir.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Vestmannaeyjabær er ósammála lagamati innviðaráðuneytisins í þremur úrskurðum þar sem uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins voru taldar ólögmætar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort látið verði reyna á niðurstöðurnar fyrir dómstólum.

Þetta kemur fram í svörum Vestmannaeyjabæjar við fyrirspurn Eyjafrétta. Þar staðfestir bærinn jafnframt að þriðji úrskurðurinn hafi borist 28. ágúst síðastliðinn.

Bærinn upplýsir ekki hvort sá úrskurður hafi verið tekinn formlega fyrir í bæjarráði, bæjarstjórn eða öðrum ráðum og nefndum. Þá kemur ekki fram hvort úrskurðirnir hafi þegar leitt til breytinga á verklagi, ábyrgðarskiptingu eða aðkomu lögfræðiráðgjafa að starfsmannamálum.

Vestmannaeyjabær segir málin enn til skoðunar og tekur fram að sveitarfélagið muni ekki svara frekari fyrirspurnum um þau meðan afstaða til mögulegrar frekari málsmeðferðar liggur ekki fyrir.

Vestmannaeyjabær óskaði eftir að svörin yrðu birt óbreytt og í heild sinni, hvert í beinum tengslum við viðkomandi spurningu. Spurningar Eyjafrétta og svör bæjarins fara hér á eftir:

  1. Hver eru viðbrögð Vestmannaeyjabæjar við þeirri staðfestingu ráðuneytisins að þrjár uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins hafi verið úrskurðaðar ólögmætar á árinu?

Vestmannaeyjabær hefur móttekið úrskurðina og farið yfir efni þeirra. Sveitarfélagið er ekki sammála því lagalega mati sem þar kemur fram að því marki sem úrskurðirnir byggja á túlkun ráðuneytisins á þeim reglum sem um málin giltu.

  1. Hvenær barst Vestmannaeyjabæ þriðji úrskurðurinn, sem kveðinn var upp 28. ágúst, og hvaða stjórnendum og kjörnum fulltrúum var greint frá honum?

Vestmannaeyjabæ barst þriðji úrskurðurinn 28. ágúst. Úrskurðir í starfsmannamálum eru kynntir þeim stjórnendum, starfsmönnum og eftir atvikum kjörnum fulltrúum sem þurfa að koma að meðferð þeirra eða eftirfylgni vegna starfa sinna. Vestmannaeyjabær telur ekki rétt að tjá sig frekar um innri málsmeðferð einstakra starfsmannamála.

  1. Hefur þriðji úrskurðurinn verið tekinn formlega fyrir í bæjarráði, bæjarstjórn eða öðrum ráðum og nefndum sveitarfélagsins?

Vestmannaeyjabær tjáir sig ekki um innri meðferð einstakra starfsmannamála umfram það sem leiðir af lögum og reglum um upplýsingagjöf.

  1. Hefur Vestmannaeyjabær unað niðurstöðu þriðja úrskurðarins eða kemur til greina að láta reyna á hana fyrir dómstólum?

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort látið verði reyna á réttmæti úrskurðanna fyrir dómstólum. Málin eru því enn til skoðunar og ekki endanlega til lykta leidd.

  1. Hafa úrskurðirnir þrír leitt til heildstæðrar yfirferðar á verklagi Vestmannaeyjabæjar við meðferð starfsmannamála?

Vestmannaeyjabær leitast ávallt við að læra af úrlausnum dómstóla, ráðuneyta og annarra stjórnvalda. Verklag sveitarfélagsins er reglulega yfirfarið og uppfært eftir því sem tilefni er til.

  1. Hafa þegar verið gerðar breytingar á verklagi, ábyrgðarskiptingu eða aðkomu lögfræðiráðgjafa að starfsmannamálum í kjölfar úrskurðanna?

Vestmannaeyjabær metur reglulega verklag sitt og ráðgjöf í starfsmannamálum með það að markmiði að tryggja vandaða stjórnsýslu og málsmeðferð. Sveitarfélagið hyggst ekki tjá sig frekar um innri verkferla eða einstök starfsmannamál.

  1. Hafa úrskurðirnir þrír leitt til sátta, bótagreiðslna eða annarra fjárhagslegra skuldbindinga fyrir sveitarfélagið?

Vestmannaeyjabær tjáir sig ekki um samskipti, viðræður eða hugsanleg fjárhagsleg málefni sem kunna að varða einstök starfsmannamál eða einstaklinga.

Annað sem Vestmannaeyjabær vill koma á framfæri

Vestmannaeyjabær leggur áherslu á að ákvarðanir í starfsmannamálum eru teknar að undangengnu mati á atvikum hvers máls fyrir sig og með hliðsjón af lögbundnum skyldum sveitarfélagsins gagnvart starfsemi sinni, starfsfólki og þeim þjónustuþegum sem reiða sig á starfsemi bæjarins. Um er að ræða vandmeðfarið mat sem getur haft áhrif á marga ólíka hagsmunaaðila. Af þeirri ástæðu telur sveitarfélagið ekki rétt að ræða einstök starfsmannamál á opinberum vettvangi umfram það sem leiðir af lögum og reglum.

Þar sem málin eru enn til skoðunar telur Vestmannaeyjabær ekki rétt að tjá sig frekar um efnisatriði þeirra að svo stöddu. Jafnframt verður sveitarfélagið ekki með frekari athugasemdir eða svör við fyrirspurnum um þessi mál á meðan afstaða til mögulegrar frekari málsmeðferðar liggur ekki fyrir.

 

Fyrri umfjöllun:

Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar

Nýjustu fréttir

Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.