Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu

Vestmannaey og Bergey lönduðu samtals um 69 tonnum í Neskaupstað sunnudaginn 18. október. Bæði skipin héldu frá Vestmannaeyjum á fimmtudag en þurftu að stytta veiðiferðir sínar vegna brælu úti fyrir Austurlandi. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Vestmannaey landaði um 31 tonni, þar af 26 tonnum af þorski og þremur tonnum af ýsu. Birgir Þór […]
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur

Skráningarfrestur fyrirtækja á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands hefur verið framlengdur til og með 31. október næstkomandi. Sýningin verður haldin í Horseday-höllinni í Ölfusi 6. nóvember. Uppspretta Suðurlands er vettvangur fyrir fyrirtæki, frumkvöðla og stofnanir á Suðurlandi til að kynna starfsemi sína, auka sýnileika og mynda ný tengsl. Sunnlenskt atvinnulíf einkennist af miklum krafti og fjölbreytileika og […]
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið

Sundlaugin í Vestmannaeyjum verður lokuð á morgun, miðvikudaginn 21. október sem og á fimmtudaginn 22. október vegna útskipta á flæðinema í jöfnunarkari. Heitu pottarnir og útisvæðið verða þó opin að venju meðan á framkvæmdum stendur. Í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að vinnan hefjist á miðvikudagsmorgun. Gangi framkvæmdir vel er stefnt að því að […]
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað

Ágúst Gísli Helgason hefur stundað pílukast um borð í Huginn VE-55, þar sem hann starfar sem háseti, í rúma tvo áratugi og er einn af öflugum fulltrúum Pílufélags Vestmannaeyja. Hann segir pílu vera frábæra íþrótt þar sem allir geti komið saman, skemmt sér og keppt, óháð aldri eða getu. Félagsskapurinn og góða stemningin skipti þar […]
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum

Vestmannaeyjabær er ósammála lagamati innviðaráðuneytisins í þremur úrskurðum þar sem uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins voru taldar ólögmætar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort látið verði reyna á niðurstöðurnar fyrir dómstólum. Þetta kemur fram í svörum Vestmannaeyjabæjar við fyrirspurn Eyjafrétta. Þar staðfestir bærinn jafnframt að þriðji úrskurðurinn hafi borist 28. ágúst síðastliðinn. Bærinn upplýsir ekki hvort […]
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja

Krabbavörn Vestmannaeyja minnir á bleikan október og þakkar þann fjölbreytta stuðning sem málefnið fær í samfélaginu. Bleikur dagur verður á morgun, miðvikudaginn 21. október og víða er málefninu lagt lið með bleikum messum og samkomum, boltaleikjum, kótelettukvöldum, bleikum kökum og fleiru. Krabbavörn heldur bleikt boð föstudagskvöldið 23. október þar sem allir eru hjartanlega velkomnir. Boðið […]
Smári Jökull hjá Sýn

Smári Jökull Jónsson fór frá Eyjum í háskólanám árið 2003, en sneri heim á sumrin fram til ársins 2006. Fyrstu skrefin í fjölmiðlum tók hann nokkrum árum síðar, þegar íþróttaáhuginn varð til þess að hann sótti um starf íþróttafréttamanns hjá Fréttablaðinu. „Ég byrjaði í kringum 2007–2008. Ég fór í viðtal hjá Fréttablaðinu, þar sem auglýst […]
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir vel koma til greina að skoða tilraunir með sjálfkeyrandi bíla á Heimaey. Þetta kom fram í svari hans við hugmynd Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, í umræðum á Alþingi í gær. Í umræðu um sjálfkeyrandi bíla velti Sigríður því upp hvort Ísland ætti að taka skref umfram önnur lönd og velja […]