Sundlaugin í Vestmannaeyjum verður lokuð á morgun, miðvikudaginn 21. október sem og á fimmtudaginn 22. október vegna útskipta á flæðinema í jöfnunarkari. Heitu pottarnir og útisvæðið verða þó opin að venju meðan á framkvæmdum stendur.
Í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að vinnan hefjist á miðvikudagsmorgun. Gangi framkvæmdir vel er stefnt að því að opna laugina aftur síðdegis á fimmtudag, en annars er gert ráð fyrir tveggja daga lokun.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda gestum, segir jafnframt í tilkynningunni.