�??Nú meikarðu það Gústi�??

Í kvöld verður Gústakvöld á Café Varmó kl. 21.00. Jóhannes Ágúst Stefánsson lést langt um aldur fram fyrr á þessu ári og nú ætla vinir hans að minnast hans í kvöld með minningardagskrá. Páll Scheving heldur tölu ásamt fleirum, og frábært tónlistafólk tekur lagið, og ljóð Gústa lesin. (meira…)

Eitt fárra skipa sem ræður við verkefnið

Jón Þórir Frantzson, forstjóri Ís­lenska Gámafélagsins, segir ómögu­legt að segja til um hvenær siglingar geti hafist aftur um Land­eyjahöfn en Íslenska Gámafélagið á og rekur dýpkunarskipið Skandia. (meira…)

Aaron Spear snýr aftur til ÍBV

Enski framherjinn Aaron Spear mun snúa aftur til ÍBV og leika með liðinu næsta sumar. Spear kom til ÍBV í lok júlí og var lengi í gang en undir lok Íslandsmótsins sýndi hann hvað í sér býr og var drjúgur fyrir Eyjaliðið. Spear lék 11 leiki í deild, skoraði í þeim 5 mörk og var […]

Dagur Arnarsson valin í U-16

Eyjapeyinn Dagur Arnarsson hefur verið valinn í 14 manna landsliðshóp Íslands, skipað leikmönnum 16 ára og yngri. Liðið leikur tvo leiki gegn Frökkum dagana 17. og 19. desember. Fram að því mun liðið æfa þrisvar sinnum á Reykjavíkursvæðinu en þjálfari liðsins er Einar Guðmundsson. Dagur á ekki langt að sækja handboltahæfileikana en faðir hans er […]

Er þessi ferja kannski lausnin?

Vandræðin með Landeyjahöfn halda áfram, dýpi ekki nægjanlegt, hvorki fyrir Herjólf eða Baldur. Grínsamir lesendur eyjafretta sendu okkur mynd af ferju, sem hugsanlega gæti sinnt þessu hlutverki, að sigla inn í Landeyjahöfn. (meira…)

Jólasælgæti Kiwanis pakkað á methraða

Í gærkvöldi var handagangur í öskjunni í Kiwanis, svo til í orðsins fyllstu merkingu því þá komu félagar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli saman með börnum og barnabörnum til að pakka niður hinu geysivinsæla jólasælgæti. Litlu vinnumennirnir unnu ótrúlega hratt og örugglega en pakkað var í á annað þúsund öskjur á rétt rúmlega hálftíma. Kiwanismenn munu svo […]

�?ingmenn Suðurlands – Hver er tilgangurinn með þessu?

Það vakti verulega athygli mína að lesa greinargerð með þingsályktunartillögu allra þing­manna Suðurkjördæmis um að ríkisstjórnin hefji nú þegar undirbúning að alútboði um smíði og rekstur nýrrar Vest­mannaeyjaferju. (meira…)

Ekki leyst yfir kaffi­bolla

Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hjá Siglingastofnun, sagði sjólag undanfarið sjaldan hafa hent­að til dýpkunarstarfa en unnið verði að dýpkun í Landeyjahöfn þegar veður leyfi. „Það er alfarið undir veðri komið hvenær gera má ráð fyrir að dýpi verði nægjanlegt fyrir Herjólf,“ sagði hann þegar spurt var hvenær siglingar gætu hafist aftur í Landeyjahöfn. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.