Rakel valin í U-20 ára landsliðið

Rakel Hlynsdóttir hefur verið valin í úrtakshóp U-20 ára landsliðs Íslands í handbolta. Alls voru 31 leikmaður valinn í fyrstu atrennu en þjálfari liðsins, Guðmundur Karlsson hefur kallað leikmennina í mælingu. Þegar niðurstöður mælinganna liggja fyrir, þá verður fyrst valið í æfingahóp sem æfir milli jóla og nýárs. (meira…)

Aðventu­tónleikar í Landakirkju í kvöld

Árlegir aðventutónleikar Kórs Landakirkju verða í kvöld, fimmtudagskvöld, og hefjast klukkan 20.00. Tónleikar kórsins á aðventu eru í hugum margra Eyjamanna einn liðurinn í að komast í hið eina sanna jólaskap. Einsöngvarar með kórnum eru Sólveig Unnur Ragnars­dóttir og Jóhannes Freyr Bald­ursson. Þetta verða fyrstu jóla­tónleikarnir undir stjórn Kitty Kovács sem tók við stjórninni í […]

Jólaperlur haldnar á ný þann 20. desember næstkomandi

Jólaperlur, árlegir tónleikar til styrktar Æskulýðsfélagi Landakirkju verða haldnir aftur í ár þann 20. desember kl 20:00 í Safnaðarheimili Landakirkju. Tónleikarnir voru áður auglýstir þann 19. en hafa verið fluttir vegna annara viðburða í Eyjum á sama tíma. Tónleikarnir verða með sama sniði og í fyrra en fjöldi nýrra söngvara munu koma fram ásamt Jólatríoinu […]

Valur Smári ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar

Valur Smári Heimisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV. Hann tekur við af Trausta Hjaltasyni sem gegnt hefur starfinu síðustu tvö ár en Trausti hættir um áramót. Valur Smári, sem er 24 ára gamall, er ekki ókunnur íslenskri knattspyrnu þar sem hann hefur skrifað um leiki ÍBV í Eyjum fyrir Vísi.is og Fréttablaðið. Undanfarið hefur […]

Fjórar ferðir á morgun í Landeyjahöfn

Herjólfur mun sigla fjórar ferðir milli Eyja og Landeyjahafnar föstudaginn 16. og laugardaginn 17. desember. Brottför frá Eyjum klukkan 8:00,11:30, 15:30 og 20:30 en brottför frá Landeyjahöfn 10:00, 13:00, 19:00 og 21:30. Búið er að opna fyrir sölu í þessar fjórar ferðir til og frá Eyjum. (meira…)

Kom færandi hendi

Slysavarnafélaginu Landsbjörg hefur borist góð gjöf frá Grími kokki ehf en um er að ræða hálft tonn af framleiðsluvörum fyrirtækisins. Vörurnar skulu nýttar í stærri aðgerðum, leitum, æfingum, fundum eða hvenær sem björgunarsveitafólk þarf á hollri og góðri næringu að halda. Helstu framleiðsluvörur Gríms eru plokkfiskur og humarsúpa. Með gjöfinni vill Grímur kokkur og hans […]

Vestmannaeyjar eiga met í skráðum lögbrotum á síðasta ári!!!

Hverju skyldi það nú sæta að við Vestamannaeyingar skulum þurfa að lesa eða hlusta á alla fréttamiðla þessa lands um að hér sé hæðsta glæpatíðni á öllu landinu. Mín skoðun er sú að ef okkar eigin vefmiðlar (þá á ég við eyjafréttir.is og eyjar.net) myndu slaka aðeins á í umfjöllun á því hvaða útköllum lögreglan […]

Frábær skemmtun hjá Eyverjum

Í gærkvöldi stóðu ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum, Eyverjar, fyrir kvöldskemmtun í Höllinni. Aðalnúmer kvöldsins var uppistandarinn Ari Eldjárn, sem fór einfaldlega á kostum þannig að tæplega 300 áhorfendur veltust um af hlátri. En auk Ara, komu fram ungir tónlistarmenn í Eyjum, þau Una Þorvaldsdóttir, Sindri Freyr Guðjónsson og Patrick Rittmüller og stóðu sig mjög vel. […]

Hvort er mikilvægara skógrækt eða heilbrigðissþjónusta, tré eða veikt fólk?

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eins og það lá fyrir þarf Sjúkrahúsið á Akureyri að hagræða um sextíu og níu milljónir. Heilsugæslan í Grindavík er skorin niður um tuttugu og fimm milljónir, Heilbrigðisstofnun Austurlands um sjötíu og eina milljón og Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki um sextíu og tvær komma átta milljónir. Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja er gert að skera niður um […]

Verð að kíkja á vini mína í Vest­mannaeyjum og þakka stuðninginn

„Ég er spenntur, ég kom síðast 2007 og var í Höllinni í rokkham. Það verður eitthvað meira, kósý núna,“ sagði Mugison sem býður öllum Vestmannaeyingum á tónleika í Höllinni á mánudagskvöld. „Ég spila fyrst og fremst efni af nýja diskinum en blanda þessu eitthvað saman.“ (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.