Víðir aftur í raðir ÍBV

Víðir Þorvarðarson, 19 ára knattspyrnumaður gekk í dag í raðir ÍBV. Víðir er Eyjapeyi í húð og hár, sonur Þorvarðar Þorvaldssonar og Guðrúnar Ragnarsdóttur en Víðir lék upp í gegnum alla yngri flokka með ÍBV. Hann lék nokkra leiki með KFS áður en hann gekk í raðir Stjörnunnar fyrir sumarið 2009. Hjá Stjörnunni á hann […]

Leyfi fyrir einni brennu en fjör í flugeldum

Aðeins hefur verið sótt um leyfi fyrir eina áramótabrennu í ár en það er ÍBV-íþróttafélag sem verður með sína árlegu áramótabrennu og í kjölfarið mun Björgunarfélag Vestmannaeyja halda flugeldasýningu. Ragnar Baldvinsson, slökkviliðsstjóri sagði í samtali við Fréttir að annað hvort væri aðeins ein brenna, eða menn séu að flaska á því að sækja um leyfi. […]

Gætið varúðar í hálkunni

„Í tíðarfari eins og verið hefur síð­ustu daga og vikur er mjög erfitt að hreinsa bæði götur og gangstéttar eins og þarf. En það er reynt og þegar snjóar mikið eru öll tæki í bænum, bæði sem bærinn á og í eigu einkafyrirtækja, send út. Eru þá allt upp í tólf til fjórtán tæki að […]

�?ökkum aðstoðina

Núna í desember heimsótti fulltrúi Hjálparstarfs aðventista – ADRA bæjarbúa til að taka við framlögum til þróunar- og líknarstarfs líkt og undanfarin ár. Söfnunarféð í þetta sinn rennur til að sporna gegn mansali í Kambódíu. Margir landsmenn muna eftir heimildarmyndinni „Börn til sölu“ sem var gerð af starfsfólki RÚV (Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur og Guðmundi Bergkvist […]

Varúð! það er mikil hálka á götum bæjarins

Bæjarbúum er bent á að það er mikil hálka á götum bæjarins og mikil slysahætta bæði fyrir akandi og sérstaklega gangandi. Best væri að sem fæstir væru á ferð við þessar aðstæður og enginn hreyfi farartæki nema að vera á mjög góðum negldum vetrardekkjum, eða hreinlega á keðjum. Gangandi er bent á að notast við […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.