Svavar Knútur með tónleika í kvöld á Kaffi Kró

Tónlistarmaðurinn og söngvaskáldið Svavar Knútur verður með tónleika á Kaffi Kró í kvöld klukkan 21:00. Svavar hefur nýtt daginn vel í Eyjum en í morgun lék hann fyrir nemendur Grunnskóla Vestmannaeyja og á eftir mun hann koma við á Hraunbúðum. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hann spilað fyrir grunnskólakrakkana. (meira…)
Umsóknarfrestur um styrki Menningaráðs Suðurlands að renna út
Umsóknarfrestur til að sækja um styrki til Menningarráðs Suðurlands er til og með 11. febrúar nk. Allir þeir, sem hafa áætlanir um áhugaverð menningarverkefni eru hvattir til að sækja um styrk til sjóðsins. Nánari upplýsingar um sjóðinn, sem og ráðleggingar um gerð umsókna veitir Dorothee Lubecki menningarfulltrúi Suðurlands. (meira…)
Harma aðferðir umhverfisráðuneytis

Bjargveiðimannafélag Vestmannaeyja hélt fund í Svölukoti síðasta laugardag. Þar voru mættir um fjörutíu félagar úr úteyjaveiðifélögum til að ræða tillögur svartfuglanefndarinnar svonefndu. Hlöðver Guðnason, formaður Veiðifélags Bjarnareyinga og Bjargveiðimannafélags Vestmannaeyja, hélt erindi á fundinum. (meira…)
Slysavarnaskólinn átti örugglega þátt í því að hann lifði þetta af

Viðtalið við Eirík Inga Jóhannsson, skipverjann sem bjargaðist þegar skuttogarinn Hallgrímur SI fórst á siglingu til Noregs, í Kastljósi í síðustu viku, hefur vakið mikla athygli. „Mér fannst átakanlegt að heyra viðtalið en það var greinilegt að þessi maður vissi hvað hann var að gera og hafði verið þjálfaður til að takast á við ýmsar […]