Tjaldurinn kominn til Eyja

Jóhann Guðjónsson, fyrrum hafnarstarfsmaður kíkti við á ritstjórn Eyjafrétta.is og tilkynnti að vorboðinn ljúfi, tjaldurinn væri kominn til Eyja. Þegar hann vann hjá Vestmannaeyjahöfn, þá fylgdust starfsmenn vel með komu tjaldsins og yfirleitt hafi hann sést fyrst í kringum 13. mars. Nú er 15. mars og er hann því aðeins seinni á ferðinni. (meira…)

Skandia byrjuð að dæla

Dæluskipið Skandia sigldi eftir hádegi upp í Landeyjahöfn og er byrjuð að dæla sandi frá mynni hafnarinnar. Aðstæður við Landeyjahöfn eru góðar og útlit fyrir að hægt verði að dæla þar næstu daga, samkvæmt upplýsingum sem fengust um borð. Gera þurfti við skipið eftir að það lenti utan í hafnargarðinum fyrir nokkrum vikum en þá […]

Aukaflug á morgun

Flugfélagið Ernir hefur sett upp aukaflug til Eyja á morgun föstudaginn 16. mars. Farið verður frá Reykjavík 14:30 og frá Eyjum 15:15. Fólk er kvatt til fylgjast með upplýsingum um aukaflug o.fl á facebook síðu Ernis. (meira…)

Vefsíða um brjóstakrabbamein fjármögnuð með 365 kjóla gjörningnum

Ný vefsíða fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein verður opnuð um helgina. Síðan er á vegum brjóstaskurðlækningaeiningar Landspítalans en síðan er fjármögnuð með ágóða 365 kjóla gjörningi Gíslínu Daggar Bjarkadóttur að því að fram kemur í Morgunblaðinu í dag. (meira…)

Vertíðin gengið ótrúlega vel

„Nú er komið lokahljóð í þetta. Kap VE er á miðunum og Sighvatur VE fer væntanlega af stað í kvöld til að ná í það sem upp á vantar,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðsstjóri upp­sjávar­­sviðs Vinnslustöð­var­innar, þegar rætt var við hann á miðviku­dagsmorgun. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.