�?riggja marka tap í fyrsta leik

ÍBV tapaði fyrsta leiknum í undaúrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta en leikurinn fór fram á heimavelli Framara í dag. Lokatölur urðu 27:24 en staðan í hálfleik var 16:12 Fram í vil. Sigur Framliðsins var hins vegar nokkuð öruggur enda var fram lengst af yfir og náði mest átta marka forystu í síðari hálfleik. En Eyjastúlkur […]

Heimaey VE afhent Ísfélaginu á þriðjudaginn

„Allt gekk eftir áætlun og við erum búin að taka við Heimaey VE 1,“ sagði Eyþór Harðar­son. útgerðarstjóri Ísfélgsins sem var við­staddur þegar Asmar-skipasmíða­stöðin Asmar í Chile afhenti félaginu nýja skipið á þriðjudaginn. „Áætlun um heimsiglingu er á sumar­daginn fyrsta og vonandi fáum við skipið heim til Eyja eftir þrjár til fjórar vikur,“ bætti Eyþór […]

Leikfélag Vestmannaeyja Bæjarlistamaður 2012

Leikfélag Vestmannaeyja hlaut útnefninguna Bæjarlistamaður Vestmannaeyja nú rétt í þessu en valið var tilkynnt í sal Listaskóla Vestmannaeyja. Fram kom við afhendinguna að valið hefði verið erfitt því margir listamenn hefðu sótt um. Það var Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar sem afhenti fulltrúum Leikfélagsins farandgrip, sem Bæjarlistamaðurinn fær ár hvert. (meira…)

Loks finnur Hafró þorskinn

Niðurstöður Hafrannsóknastofnunar á mæl­ingum þorskstofnsins í mars á þessu ári kom mjög vel út og stofnvísitala þorsks hefur ekki verið hærri frá árinu 1985. Meira hefur fengist af stórum þorski og meðalþyngd hans farið hækkandi undanfarin ár. Vísir menn reikna með að stofnunin mæli með auknum heimild­um í veiðum á þorski í kjölfarið. (meira…)

Nýir eigendur skoðuðu verslunina sem er að rísa við Græðisbraut

Í maí eru tíu ár liðin frá því að Húsasmiðjan keypti Húsey og hóf rekstur í Vestmannaeyjum. Það er því vel við hæfi á þeim tímamótum að Húsasmiðjan flytji sig um set og fari í nýtt og glæsilegt verslunar­rými við Græð­isbraut 1. Þar rís nú 1100 fermetra verslunarhús, sem er tvöfalt stærra en núverandi verslun­arrými. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.