Gylfi �?gis á Café Varmó

„Ég verð á Café Varmó í Eyjum um hvítasunnuna, föstudag, laugardag og sunnudag,“ sagði Gylfi Ægis­son, tónlistar- og myndlistarmaður. „Ég verð þar með tónleika og uppistand sem ég kalla Á frívakt­inni. Þar syng ég lög eftir mig og fer með gamanmál. Tónleikarnir eru kl. 22.00 til 24.00 öll kvöldin. (meira…)

Hin hliðin á deilum innan VSV

Þegar við bræður komum að Vinnslu­stöðinni hf. (VSV) fyrir tæpum 10 árum þá var búið að ganga á ýmsu hjá félaginu. Ein meginástæða þess að við komum að félaginu var að til okkar var leitað af núverandi framkvæmdarstjóra félagsins og nokkrum Eyjamönnum sem spurðu hvort við værum til í að hjálpa þeim að kaupa hlutabréf […]

Alltaf logn í Vestmannaeyjum

Á vefnum Fótbolti.net er reglulega liður sem nefnist Á heimavelli en þar sjá leikmenn liðanna í Pepsídeild karla um að kynna sitt nánasta umhverfi. Í dag var komið að ÍBV og sáu þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guðmundur Þórarinsson um að kynna Heimaey fyrir lesendum vefsins. Sjón er sögu ríkari. (meira…)

�?essar taka þátt í Sumarstúlkukeppninni 2012

Sumarstúlkukeppnin verður haldin í Höllinni 16. júní næst­komandi en framkvæmda­stjóri keppninnar í ár er Emma Bjarnadóttir. Stúlkurnar eru þegar farnar að undirbúa ­keppnina en 12 stúlkur taka þátt í henni í ár. (meira…)

�?rjár úr ÍBV í U-18 landsliðið

Þrjár Eyjastúlkur, þær Berglind Dúna Sigurðardóttir, Drífa Þorvaldsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir hafa allar verið valdar í æfingahóp U-18 ára landsliðs Íslands í handbolta. Íslenska liðið undirbýr sig undir opna Evrópumótið sem fer fram í Gautaborg 2. til 6. júlí en æfingar liðsins fara fram nú um helgina í Reykjavík. (meira…)

Hótel enn í skoðun

„Hásteinsgryfjan er í skipulagsferli og Fosshótel er að fara yfir það sem snýr að Fiskiðjunni,“ sagði Elliði Vignisson, bæjar­stjóri, þegar hann var spurður um hvað líður hugmyndum um hótel í Hásteinsgryfju og í Fiskiðju. (meira…)

Upptökur �?jóðlaginu á sunnudag

Fjallabróðirinn Halldór Gunnar Pálsson þeysist nú landshorna á milli til að taka upp söng þjóðar­innar fyrir lag sitt, Þjóðlagið. Nú þegar hafa um sjö þúsund manns sungið viðlag Þjóðlagsins en Halldór segir að markmiðið sé að fá 10% þjóðarinnar til að syngja undir. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.