Makrílveiðar og sjósund

Veðurblíðan hefur ekki bara glatt landkrabbana. Sjómenn hafa líka notið góða veðursins og þegar tími gafst frá veiðum brugðu nokkrir úr áhöfninni á Guðmundi VE 29 á leik og stungu sér til sunds í Atlantshafið. Björn Guðjohnsen, vélstjóri skrifaði eftirfarandi texta á heimasíðu skipsins og myndirnar sem hér fylgja með tók Sölvi Harðarson. (meira…)
Reiknað með að dæla þurfi allt að 360 þúsund rúmmetrum næstu þrjú árin

Siglingastofnun auglýsir í Morgunblaðinu í dag eftir aðila til að sjá um viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar, næstu þrjú árin. Reiknað er með að dæla þurfi allt að 360 þúsund rúmmetrum af sandi, bæði innan og utan hafnarinnar á þessu tímabili. Tilboð á að opna 31. júlí n.k. (meira…)
Hún rís úr sumarsænum

Á myndbandinu sem hér fylgir, er slegist í för með Páli Hallgrímssyni, lækni og Eyjapeyja, sem heimsótti æskustöðvarnar í síðustu viku. Páll fór á Dalfjall, gekk Eggjarnar, yfir á Klif og síðan á Heimaklett, þar sem hann hitti m.a. fjallgeiturnar, Ólaf Einarsson og Höllu Svavarsdóttur. Veðrið var eins og best verður á kosið eins og […]
Subway opnar í lok júlí

Eins og kunnugt er, hefur Subway skyndibitakeðjan, keypt húsnæði verslunarinnar Jazz við Bárugötu. Talverðar breytingar þarf að gera á húsnæðinu til að það henti starfseminni og er unnið að þeim af miklum krafti. Að sögn Gunnars Skúla Guðjónssonar hjá Subway, er stefnt að opnun staðarins í lok júlí, líklega helgina 27.-29. júlí. (meira…)