Svekkjandi jafntefli gegn meistaraefnunum

Meistaraheppni segja sumir eftir að Þór/KA náði jafntefli gegn ÍBV á Hásteinsvelli í kvöld. Sannarlega voru Akureyringar heppnir að fá aðeins eitt mark á sig, eða kannski voru það leikmenn ÍBV sem voru svona óheppnir að skora ekki fleiri mörk. Alltént lauk leiknum með jafntefli 1:1 en ÍBV átti m.a. þrjú skot í stöng. Jafnteflið […]
Stærstu umhverfisúrbætur á seinustu árum

„Þær framkvæmdir sem við nú erum í eru náttúrulega risavaxnar. Sennilega eru þetta stærstu umhverfisúrbætur sem við höfum ráðist í á seinustu árum. Kostnaðurinn við framkvæmdina er um 235 milljónir og deilist á tvö ár. Það er til marks um rekstrarlegan styrk Vestmannaeyjabæjar að geta ráðist í framkvæmdir sem þessar án þess að draga úr […]
Vandasamt að hanna nýja ferju

Á mánudaginn var haldinn fyrsti fundur stýrihóps um nýjan Herjólf. Elliði Vignisson, bæjarstjóri situr fundi hópsins en auk þess eru í hópnum Eyjamennirnir Guðlaugur Ólafsson, skipstjóri á Herjólfi og Andrés Þ. Sigurðsson frá Vestmannaeyjahöfn, auk aðila frá hinu opinbera. (meira…)
Tvö nauðgunarmál í Eyjum upplýst

Tvö af þremur nauðgunarmálum, sem kærð voru á þjóðhátíð um verslunarmannahelgina, eru upplýst en ekki hefur verið gefin út ákæra á hendur árásarmönnunum að sögn Odds Árnasonar, yfirlögregluþjóns á Selfossi. (meira…)
Meistaraefnin frá Akureyri í heimsókn

Í kvöld klukkan 18:00 fer fram stórleikur í Pepsídeild kvenna á Hásteinsvelli þegar meistaraefnin í Þór/KA koma í heimsókn til Eyja. Norðanstelpur eru langefstar í deildinni og þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir, eru þær með sex stiga forystu á Stjörnuna, sem er í öðru sæti og sjö stiga forystu á ÍBV, sem er í […]
Sorp frá Eyjum mögulega úr landi

„Það sem okkur finnst vera verst í þessu er að þurfa e.t.v. að flytja sorpið burt með Herjólfi,“ segir Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar. Fyrsta nóvember næstkomandi mun sorpbrennslustöðin í Eyjum hætta starfsemi eftir um tuttugu ára rekstur. Með lokun stöðvarinnar þarf að flytja allt sorp, almennt og endurvinnanlegt, frá Eyjum og þykir […]