Bilunin 2-300 metra frá sjávarmáli

Búið er að staðsetja bilunina í öðrum af tveimur rafstrengjum sem sjá Eyjamönnum fyrir raforku. Strengurinn bilaði í gær en óttast var að bilunin væri í sjó, þannig að viðgerð yrði erfið. Nú er hins vegar komið í ljós að bilunin er 2-300 metra frá sjávarmáli, inn í landi, þannig að viðgerð verður mun auðveldari […]
Lóðsinn með �?órunni Sveinsdóttur VE 401 í togi

Hafnsögubáturinn Lóðsinn frá Vestmannaeyjum hélt á tólfta tímanum áleiðis til móts við togskipið Þórunni Sveinsdóttur VE-401 vegna vélarbilunar þar um borð. Sveinn Valgeirsson, skipstjóri á Lóðsinum, segir enga hættu á ferð. Þórunn sé langt frá landi og skipið verði tekið í tog til heimahafnar í Vestmannaeyjum. (meira…)
Nýr rafstrengur þjóðhagslega hagkvæmur

Fréttir um ástand annars rafstrengsins til Vestmannaeyja vekja upp spurningar um stöðu orkumála í Vestmannaeyjum. Eins og staðan er núna anna strengirnir ekki raforkuþörf Vestmannaeyja. Rofni annar strengurinn, eins og nú hefur gerst, verður því ekki mætt nema með aukinni olíunotkun og tilheyrandi kostnaði og óöryggi í orkumálum Vestmannaeyja. (meira…)
Enn ekki hægt að mæla strenginn

Enn hefur ekki tekist að mæla annan af tveimur rafstrengjum sem flytja rafmagn til Vestmannaeyja. Til stóð að mæla strenginn eftir að bilun kom upp í gær, sem varð til þess að rafmagnslaust var í um 20 mínútur í gærkvöldi. Hins vegar er svo slæmt veður í Rimakoti í Landeyjum, þar sem hinn endi strengsins […]
�?nnur ferð Herjólfs fellur einnig niður

Önnur ferð Herjólfs í dag fellur einnig niður en skipið sigldi ekki fyrstu ferð sína í morgun. Áætlað var að sigla klukkan 11:30 frá Eyjum og 13:00 frá Landeyjahöfn en þeirri ferð hefur nú verið aflýst. Ástæðan er ölduhæð í Landeyjahöfn. Athugun með næstu ferð frá Eyjum verður klukkan 13:00 en áætlað er að sigla […]
Fyrsta ferð Herjólfs fellur niður í dag, fimmtudag

Vegna ölduhæðar (3,5m og mikið brot milli hafnargarðanna) í Landeyjahöfn fellur fyrsta ferð Herjólfs niður frá Vestmannaeyjum kl. 08:30 og frá Landeyjahöfn kl. 10:00. Athugun kl 10:00 með ferð frá Eyjum 11:30. Farþegar eru vinsamlegast beðnir að fylgjast með fréttum á www.herjolfur.is, á facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í textavarpi RUV. (meira…)