Virkar öryggisventillinn?

Það heyrist oft hátt í Eyjamönnum. Það hátt að latteþambandi landkröbbum uppi á landi svelgist stundum á froðunni. Þannig hafa viðbrögð Vestmannaeyjabæjar vegna kaupa Síldarvinnslunnar á Berg-Huginn ekki farið framhjá neinum en bæjaryfirvöld hafa ákveðið að láta reyna á forkaupsréttarákvæði 12. gr. laga um stjórn fiskveiða vegna sölunnar. (meira…)

KFR og BúAðföng gáfu stuttbuxur og vatnsbrúsa

Nú er skólastarf hafið á nýju skólaári og fullt af ungum íþróttaiðkendum að hefja sitt fyrsta skólaár. Það er vissulega stórt skref að byrja í skóla og því langaði Knattspyrnufélagi Rangæinga (KFR) og BúAðföngum að gefa börnunum stuttbuxur og vatnsbrúsa í tilefni af þessum merku tímamótum. Þau voru glöð í bragði krakkarnir sem tóku við […]

Sigurður og Kristinn í U-17

Þeir Sigurður Grétar Benónýsson og Kristinn Skæringur Sigurjónsson, undir knattspyrnumenn í ÍBV, hafa verið valdir í lokahóp íslenska landsliðsins skipað leikmönnum 17 ára og yngri. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem Eyjamenn eiga fulltrúa í þessu landsliði en liðið tekur þátt í undankeppni EM á Möltu dagana 29. september til 4. október. […]

Takmörkum framsal veiðiheimilda

Frá því að ég fór að taka virkan þátt í stjórnmálum fyrir um tveimur áratugum hefur verið harkalega tekist á um stjórnkerfi fiskveiða. Enda miklir hagsmunir undir og himinn og haf á milli sjónarmiða. Sumir telja núverandi kerfi gott með óheftu framsali og leigu heimilda. Þær byggðir sem standa sig safna heimildum. Aðrar verða undir. […]

Síld og fleira góðgæti

Sighvatur er undir hjá Vinnsló með 600 tonn af síld. Júppi var undir í gær með 550 tonn hjá Fes. Suðurey var í fyrradag með 90 tonn. Bergey einnig með 75 tonn. Vestmannaey og Dala Rafn í gær með 70 tonn hvor. Bergur í gær með 80 tonn. Brimnesið kom hér við í fyrrakvöld til […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.