Tvívegis eldur í sama húsinu

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins um helgina en eitthvað var þó um að aðstoða þurfti fólk sökum ölvuanrástands þess.Tveir brunar voru tilkynntir lögreglu í vikunni og voru þeir báðir í sama húsinu en um er að ræða […]

Sigríður Lára á skotskónum með U-19

Eyjastelpan Sigríður Lára Garðarsdóttir var á skotskónum í dag þegar íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, valtaði yfir Moldavíu 5:0. Sigríður Lára kom Íslandi í 3:0 í fyrri hálfleik en hún er eini fulltrúi ÍBV í liðinu. Ísland leikur í riðli með Moldavíu, Slóvakíu og Danmörku í undankeppni EM. Þegar tveimur […]

Páll �?skar með unglingaball í Höllinni

Páll Óskar er á leið til Eyja og í samráði við Höllina og félagsmiðstöðina Rauðagerði, ákvað hann að lengja ferðina og gefa allt í alvöru unglingaball í Höllinni. Palli er án nokkurs vafa vinsælasti skemmtikraftur landsins og hefur verið það í nokkur ár. Hann hefur algjörlega farið á kostum á síðustu Þjóðhátíðum og það verður […]

Dagskrá Safnahelgarinnar farin að taka á sig mynd

Eins og undanfarin ár, verður Safnahelgin haldin fyrstu helgina í nóvember eða dagana 1.-4. nóvember. Dagskrá helgarinnar er farin að taka á sig mynd en meðal þess sem boðið verður upp á eru myndlistasýningar, tónleikar og lestur úr nýjum bókum. Meðal gesta hátíðarinnar eru Þórarinn Eldjárn, Egill Helgason og Óttar Guðmundsson. (meira…)

Dagur í landsliðið

Handboltapeyinn Dagur Arnarsson var í síðustu viku valinn í lokahóp íslenska landsliðsins í handbolta, skipað leikmönnum 16 ára og yngri. Liðið mun taka þátt í fjögurra liða móti í Frakklandi en í mótinu spila Íslendingar, heimamenn í Frakklandi, Norðmenn og Ungverjar. Mótið fer fram um mánaðarmótin október nóvember en frá þessu er greint á heimasíðu […]

Lionsmenn láta gott af sér leiða

Lionsmenn tóku til hendinni við sólpallinn við Sambýlið um helg­ina. Félagarnir stækkuðu pallinn og lagfærðu þannig að hægt sé að koma fyrir heitum potti, sem Sambýlið fékk að gjöf á dögunum en hann var keyptur fyrir ágóðann á árlegu golfmóti Ufsaskalla. Lionsmenn gáfu einnig góða gjöf til Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.