Eyjamenn fóru illa með Gróttu

Karlalið ÍBV fór á kostum þegar strákarnir tóku á móti Gróttu í 1. deildinni í dag. Gróttu var spáð mjög góðu gengi í vetur en Eyjamenn sýndu mikla yfirburði gegn Seltirningum, voru 11 mörkum yfir í hálfleik og unnu að lokum með 17 mörkum, 35:18. (meira…)

Velferðin og börnin eru framtíðin

Kæru Eyjamenn. Senn líður að alþingiskosningum og þá er gott að horfa fram á veginn og velta fyrir sér hvað það er sem skiptir mestu máli í aðdraganda kosn­inga. Í þessari grein ætla ég að fjalla um mikilvægi þess að stjórnvöld haldi áfram að hlúa að vel­ferðinni því hún er undirstaða aukinnar velmegunar og síðast […]

Stefni á 2. �?? 4. sæti á lista Samfylkingarinnar

Við banka – og gjaldeyrishrunið fyrir rúmum fjórum árum var stærsta verkefni jafnaðarmanna að standa vörð um velferðarkerfið. Það varð að gera samhliða miklum niðurskurði í ríkisútgjöldum ásamt endurskipulagningu íslensks fjármálakerfis og því að marka trúverðuga stefnu til framtíðar í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur á þessum erfiðu tímum tekist að standa vörð um […]

Handboltaveisla í dag

Handboltaunnendur í Vestmannaeyjum ættu að fá nóg fyrir sinn snúð í dag því bæði karla- og kvennalið eiga heimaleik í dag, laugardag. Stelpurnar byrja á því að taka á móti Fylki klukkan 12:00. Fylkir er í næst neðsta sæti deildarinnar og ætti ekki að vera mikil fyrirstaða fyrir ÍBV. Þó er rétt að hafa í […]

Verslun og neytendur

Hef verið að velta þessu sambandi fyrir mér undanfarna daga eftir að hafa lesið grein í Fréttum þann 24. okt síðastliðinn sem bar yfirskriftina „Góð þjónusta þrífst ekki ef enginn er viðskiptavinurinn“. Fínasta grein sem veltir upp ýmsum vandræðum sem verslun stendur frammi fyrir í dag í Vest­mannaeyjum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.