Todmobile í Höllinni 23. og 24. nóvember

Ein allra stærsta og vinsælasta hljómsveitin á Íslandi síðustu tvo áratugina, Todmobile, er á leið til Eyja og spilar í Höllinni 23. og 24. nóvember næstkomandi. Todmobile heldur nú um helgina risatónleika í Eldborgarsal Hörpu, Todmobile Klassík og helgina á eftir verða þau sem sagt í Höllinni í Eyjum. (meira…)
Eyjaflotinn hálfnaður með kvótann

Veiðar á Íslandssíldinni ganga vel þrátt fyrir rysjótta tíð. Í allt eru komin á land í Vestmannaeyjum milli 8000 og 9000 tonn sem er rétt rúmur helmingur aflaheimilda Eyjaflotans. Allt er fer til manneldis og er unnið á vöktum allan sólarhringinn bæði í Ísfélagi og Vinnslustöð. (meira…)
Hafna alfarið að taka á sig 15% launalækkun

Deila sjómanna og útgerðar er flókin og gæti orðið erfið úrlausnar. Hugsanlegt verkbann LÍÚ fer illa í sjómenn sem segja að það hafi komið flatt upp á þá. Stóru málin eru þátttaka sjómanna í olíukaupum, sjómannaafsláttur og krafa um að þeir taki á sig launalækkun m.a. vegna hærra veiðigjalds. Það er líka tekist á um […]
Fengu um 2000 tonn í nótina

Heimaey Ve fékk sannkallað risakast á síldveiðum í gær. Alls voru um 2000 tonn af vænni síld í nótinni þegar hún var dregin að síðu skipsins. Byrjað var á því að fylla lestar skipsins en önnur skip í næsta nágrenni nutu einnig góðs af þessu góða kasti Heimaeyjar VE. Skipin voru öll við veiðar í […]
Frá Sandgerði að Höfn og ekki komin hálfa leið

Ég hef undanfarnar vikur farið yfir kjördæmið þvert og endilangt frá Sandgerði að Höfn í Hornafirði. Með reglulegri viðkomu heima í Vestmannaeyjum. Ég hef þurft að fara hratt yfir og ekki náð að koma við á ölllum þeim stöðum sem ég hefði viljað í hverju bæjarfélagi, hvað þá að fara um sveitirnar. (meira…)
Falleg sólarupprás í morgunsárið

Þrátt fyrir rysjótta tíð undanfarið getur náttúran skartað sínu fegursta. Áhugaljósmyndarar í Eyjum hafa verið duglegir að mynda það sem fyrir augu ber en Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta fangaði sólarupprásina í morgunsárið. (meira…)
�?lík svæði, sömu áherslur

Síðustu daga hef ég verið svo lánsamur að hafa fengið tækifæri til að ferðast um hið víðfema Suðurkjördæmi. Þessi ferðalög hafa að mestu verið í tengslum við framboð mitt í flokksvali Samfylkingarinnar í kjördæminu og ég hef hitt skemmtilegt fólk allt frá Höfn og vestur í Garðinn. Þegar maður fer svona um kjördæmið þá sér […]