Hlynur og Gunnar mætast í kvöld

Í kvöld, klukkan 19:30 fer fram úrslitaleikur í sterkasta snókermóti sem haldið er ár hvert í Eyjum, Olísmótinu. Mótið er í raun sveitakeppni á milli Akóges, Kiwanis og Oddfellow en auk þess einstaklingsmót þar sem stigahæstu einstaklingarnir mætast í úrslitum. Í gær áttust við knattspyrnukapparnir fyrrverandi Hlynur Stefánsson úr Kiwanis og Albert Sævarsson úr Oddfellow […]

Vesna áfram hjá ÍBV

Vesna Smiljkovic mun leika áfram með ÍBV næsta sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags en landi hennar, Danka Podovac skrifaði nýverið undir samning við Stjörnuna eftir að hafa leikið með ÍBV síðustu þrjú ár. Þá er ljóst að nokkrar breytingar verða á leikmannahópi ÍBV en þær Elínborg Ingvarsdóttir, Andrea Ýr Gústavsdóttir og Berglind Björg […]

Hvað er að frétta af gosstöðvum?

Í tilefni af því að 40 ár eru liðinn frá eldgosinu á Heimaey birtist nú hér á Eyjafréttum í samstarfi við Vestmannaeyjabæ daglegar fregnir af gosstöðvunum fyrir 40 árum. Fréttirnar birtast hér til hægri á síðunni og uppfærast nánast daglega fram að goslokum með nýjustu fréttir af gangi gossins. (meira…)

Tæknin tekur yfir á Stórhöfða

Veðurskeytastöð 815 á Stórhöfða í Vestmannaeyjum verður lögð niður í vor og hinn 1. maí tekur sjálfvirkur tæknibúnaður alfarið við. Þetta er gert í hagræðingarskyni en er einnig í takt við tímann því veðurathugunarmönnum fer smátt og smátt fækkandi – þótt starfsstéttin sé ekki alveg útdauð enn. (meira…)

Ljósnet sett upp í Eyjum í tveimur áföngum

Áætlað er að leggja svokallað ljósnet í Vestmannaeyjum á árinu en Síminn áætlar að leggja ljósnet á 53 stöðum á landinu. Ljósnet er í raun ljósleiðaratenging í símstöð eða götuskápa víðs vegar um bæinn en tenging þaðan verður með hefðbundn­um koparvírum inn á heimili. Þessi tenging þýðir hins vegar mun meiri flutningsgetu, m.a. á internettengingu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.