Ingibjörg hefur engu gleymt

Í kvöld fóru fram 8-liða úrslit í Símabikar kvenna. ÍBV átti tvö lið í keppninni, A- og B-lið en A-liðið sótti FH heim í Hafnarfjörðinn og vann 20:24. ÍBV er því komið í undanúrslit. B-lið ÍBV tók hins vegar á móti stórliði Fram í Eyjum. Eftir jafna fyrstu mínútu leiksins, þar sem ÍBV jafnaði 1:1, […]
Algjörlega ófært í gær

Guðmundur Alfreðsson, flugmaður, flaug í gær, 4. febrúar yfir Landeyjahöfn og hafði meðferðis upptökuvél. Myndbandið úr ferðinni má sjá hér að neðan en aðstæður við höfnina voru mjög slæmar. Í gær, þegar myndbandið var tekið, var meðalvindhraði um 10 metrar á sekúndu og ölduhæð í kringum fjóra metra samkvæmd öldudufli við höfnina. (meira…)
Hvar verður þú kl. 18 í dag?

Í dag fer fram ein áhugaverðasta viðureignin í íslenska handboltanum um þessar mundir en kvennalið meistaraflokks Fram í handbolta sem trónir í öðru sæti N1 deildarinnar, munu sækja heim reynsluboltana, fyrrum landsliðskonurnar og íþróttastjörnurnar úr b) liði ÍBV en þar eru burðarásar í liðinu stór nöfn á borð við Vigdísi Sigurðardóttur, Andreu Atladóttur, Ingibjörgu Jónsdóttur, […]
Gamlar kempur rífa fram skóna

Svo gæti farið að ÍBV tefli fram tveimur liðum í undanúrslitum Símabikars kvenna. Það verður þó að teljast afar ólíklegt þar sem B-lið ÍBV tekur á móti öðru af tveimur bestu liðum landsins, Fram í kvöld klukkan 18:00 í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Á sama tíma sækir A-liðið FH heim í Kaplakrika. (meira…)