Góð byrjun hjá Eyjamönnum

ÍBV lagði ÍA að velli á Hásteinsvelli í dag 1:0. Eyjamenn spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik og komu eflaust mörgum á óvart með lipru spili sínu. Aðeins dró af Eyjaliðinu í síðari hálfleik, Skagamenn náðu betri tökum á sínum leik án þess þó að ná að jafna. Þeir fengu þó sín færi en varnarmenn […]
Fyrsti leikurinn í dag

Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur opnunarleik Íslandsmótsins í dag á Hásteinsvelli klukkan 16:00 þegar ÍA kemur í heimsókn. Miklar breytingar hafa orðið á liði ÍBV, sterkir leikmenn hafa horfið á braut en að sama skapi hafa nýir leikmenn gengið í raðir félagsins og fremstur þar í flokki er enski markvörðurinn David James. (meira…)