Kajakræðarinn Guðni Páll réri til Eyja í kvöld

Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson réri inn í Vestmannaeyja höfn klukkan rúmlega átta í kvöld. Guðni Páll er í svokölluðum Lífróði en hann ætlar að sigla á kajak hringinn í kringum landið en tilgangurinn er að safna fé til styrktar Samhjálp. (meira…)
Íbúakosning um hótel við Hástein

Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt að fram fari íbúakosning um byggingu hótels við Hástein og fer könnunin fram 21.-22.maí nk. Til að nýta atkvæðarétt sinn eru tvær leiðir í boði. Annars vegar er hægt að kjósa í Safnahússinu frá 08-16 báða dagana og hins vegar er um að ræða rafræna kosningu. Til þess að geta kosið […]
Áfram �?ór!

Mér finnst ekki langt síðan að maður atti kappi við Þórara uppi á Maló – hörkutólin Helga Braga og Nökkva Sveins og varnartröllin Hinna Bjarna og Nonna Loga, valmennið sem stendur nú vaktina á grænum grundum almættisins. Blessuð sé minning hans. Baráttan var hörð, en leikgleðin í fyrirrúmi og hvorki spáð í blóðug hné né […]
Hungraðir og þyrstir fari saddir og ánægðir

Í aldarfjórðung hefur Birgir Sveinsson staðið vaktina í Tvistinum sem er skyndibitastaður og sjoppa af bestu gerð. Hann byrjaði neðarlega við Heiðarveginn en flutti sig seinna ofar þar sem Faxastígur sker Heiðarveginn. Þar eru næg bílastæði, húsnæðið er rúmgott og bjart og þar mætir manni hlýlegt og vinalegt viðmót. (meira…)
Lofa góðum tilþrifum og fjöri

Á laugardaginn fer fram fyrsta torfærukeppnin í Íslandsmótinu. Mótið verður haldið í Vestmannaeyjum og hefst keppni kl. 13:30 austur á Nýja hrauni. Bílarnir fara í gegnum sex brautir og má búast við að keppnin standi eitthvað fram eftir degi. Alls eru 23 bílar skráðir til keppni, sem gerir mótið eina af stærstu torfærukeppnum sem haldnar […]