Breiðablik sigraði ÍBV 3-1

Sannkallaður stórleikur fór fram á Kópavogsvelli í kvöld þegar Breiðablik mætti ÍBV en liðin voru í 2. og 3. sæti fyrir leikinn. Leikurinn fór frekar rólega af stað og kom ekki fyrsta skot ÍBV fyrr en eftir 15. mínútur. Fyrsta alvöru færi Eyjakvenna kom minútu síðar þegar Sísí Lára sendi boltan á Shaniku Gordon sem […]
Ufsaskalli um helgina

Golfmótið Ufsaskalli verður haldið í fimmta sinn á golfvellinum í Vestmannaeyjum á morgun, .laugardag. Mótið er styrktarmót og rennur allur ágóði mótsins í gott málefni í Eyjum en í fyrra keyptu aðstandendur mótsins heitan pott og gáfu Sambýlinu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Eins og í öllum góðum golfmótum, er golfið ekki aðalatriðið, […]
Mæta Breiðabliki á útivelli í kvöld

ÍBV mætir Breiðabliki í kvöld á Kópavogsvelli í 7. umferð Pepsídeildar kvenna. Um er að ræða toppleik því Breiðablik er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig og ÍBV í því þriðja með 13 stig. Eyjaliðið glímir hins vegar við meiðsli lykilmanna og vantar t.d. þær Vesna Smiljkovic og Ana Lopez, sem eru báðar meiddar. […]
Gott að styrkja gott málefni og skemmta sér

Í kvöld, föstudaginn 14. júní verða haldnir tónleikar í Bæjarleikhúsinu til styrktar Einhugar, foreldrafélagi einhverfra barna í Vestmannaeyjum. Allur ágóði tónleikanna rennur til félagsins en á tónleikunum koma ýmsir tónlistarmenn Vestmannaeyja fram. (meira…)
David James með frábæra markvörslu á Ísafirði

David James sýndi af hverju hann var um árabil aðalmarkvörður enska landsliðsins í bikarleiknum á Ísafirði í gær. Í stöðunni 0:1 fengu Ísfirðingar hornspyrnu og danski miðvörðurinn Dennis Nielsen átti fastan skalla af stuttu færi, sem í flestum tilvikum hefði endaði í netinu. En James kastaði sér á boltann og bjargaði á elleftu stundu. Einhverjir […]
Fyrsti dagur Pæjumóts gekk vel

Pæjumótið hófst í gær og var spilað á öllum völlum frá morgni til kvölds. Í gærkvöldi var svo setningarhátíð Pæjumótsins en fastur liður setningarinnar er Idolkeppni liðanna og sáust mörg skemmtileg atriði. Fyrstu leikirnir í dag hófust klukkan 8:20 og verður leikið fram á kvöld, þegar landsleikur, grillveisla og diskósund tekur við hjá stelpunum. (meira…)
Hæglætisveður framundan en lítil sól

„Mánudagurinn (10.júní) var hlýr á landinu, hlýjasti dagur ársins á um 40 prósentum allra veðurstöðva á landinu þar á meðal Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði þar sem hitinn komst í 22,8 stig á sjálfvirku stöðinni, 21,5 á þeirri mönnuðu. Það er hæsti hiti sem mælst hefur á landinu það sem af er ári,“ segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur, […]
Elísa inn í landsliðshópinn fyrir æfingaleik

Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði knattspyrnuliðs ÍBV var í gær kölluð inn í leikmannahóp íslenska A-landsliðsins sem mætir Dönum í æfingaleik ytra næsta fimmtudag. Elísa var upphaflega ekki í hópnum en var í leikmannahópi Íslands þegar liðið mætti Skotum um síðustu mánaðarmót. (meira…)