Hættum ekki fyrr en við náum samningum á okkar forsendum

Trúnaðarmenn áhafnarinnar á Herjólfi vísuðu á Jónas Garðarsson, framkvæmdastjóra Sjómannafélagsins og formann samninganefndarinnar þegar leitað var viðbragða þeirra við verkfallsboðuninni. �?egar rætt var við Jónas í morgun sagði hann nokkuð bratt á milli aðila en þarna sé reynt að ná sambærilegum samningum fyrir áhöfn Herjólfs og sjómenn hjá Eimskip náðu í samningum í maí 2011. […]

Ofurhetjur, afturgöngur, skrímsli og trúðar

Í dag er �?skudagurinn og venju samkvæmt ganga börn á öllum aldri í verslanir og fyrirtæki eftir að skóladegi lýkur, syngja og fá eitthvert góðgæti í þakklætisskyni. Fjölmargir litu við á ritstjórn Eyjafrétta í dag, furðuverur af öllum gerðum og stærðum. Krakkarnir sungu og fengu skrifblokk í pokann, ágætis tilbreyting frá namminu. Allir voru myndaðir […]

Aðeins ein ferð næstu daga

Allt bendir til þess að Herjólfur muni sigla til �?orlákshafnar næstu daga miðað við ölduspá næstu daga. �?að þýðir að skipið mun aðeins sigla eina ferð fram á föstudag og enga laugardag og sunnudag vegna verkfalls félagsmanna Sjómannafélags Vestmannaeyja sem eru í áhöfn skipsins. Verkfall þeirra stendur frá klukkan 17:00 á virkum dögum og til […]

Ernir bregst við samgönguvanda Eyjanna

Flugfélagið Ernir mun bæta við ferðum ef þurfa þykir og mun fylgast mjög vel með þróun bókana næstu daga v/ verkfalls starfsmanna Herjólfs, að því að fram kemur í tilkynningu frá félaginu. �??Við verðum á tánum og eigum enn möguleika á að bæta við á morgun fimmtudag, föstudag laugardag og sunnudag. Einnig er verið að […]

Elísa í byrjunarliði Íslands

Elísa Viðarsdóttir, fyrrum fyrirliði ÍBV og núverandi leikmaður Kristianstad, er í byrjunarliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem mætir Evrópumeisturum �?ýskalands í Algarve bikarnum klukkan 15:00 í dag. Fanndís Friðriksdóttir er einnig í leikmannahópi íslenska liðsins. Íslenska liðið er þannig skipað: Markmaður: Guðbjörg Gunnarsdóttir Vörn: Elísa Viðarsdóttir – Glódís Perla Viggósdóttir – Anna Björk Kristjánsdóttir – […]

Áheitasund til minninga afreks Guðlaugs Friðþórssonar

ø;

Haldið verður áheitasund í sundlauginni á Hvolsvelli 11. mars næstkomandi en þann dag eru 30 ár liðin frá Helliseyjarslysinu þar sem Guðlaugur Friðþórsson synti tæpa 6 km til lands í Heimaey eftir að báturinn Hellisey VE 503 sökk. Afreks Guðlaugs verður minnst með áheitasundinu en allur ágóði af sundinu fer í viðhald og hreinsun á […]

Dagur í U-18 ára landsliðið

Dagur Arnarsson, handknattleiksmaður hefur verið valin í lokahóp U-18 ára landsliðsins sem leikur æfingaleiki gegn Dönum í Danmörku dagna 4. til 6. apríl. 14 leikmenn eru í hópnum og er Dagur eini fulltrúi ÍBV í liðinu. Dagur er í viðtali á Sport.is en þar segir hann m.a. að hann sé bjartsýnn fyrir leikina gegn Dönum. […]

Aðeins ein ferð í dag

Herjólfur siglir í dag til �?orlákshafnar en vegna verkfalls félaga Sjómannasambands Íslands, háseta, bátsmanna og þerna um borð, siglir skipið aðeins þessa einu ferð í dag. Verkfallið hefst klukkan 17:00 í dag og mun standa til klukkan 8:00 morguninn eftir, alla virka daga. Auk þess mun verkfallið standa bæði laugardaga og sunnudaga og verður skipið […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.