Lægsta tilboðið helmingi lægra en það næstlægsta

Tilboð í hönnun á nýrri Vestmannaeyjaferju voru opnuð hjá Ríkiskaupum rétt fyrir hádegi í dag. �?rjú tilboð bárust í hönnunina en lægsta tilboðið átti Burness Corlett Three Quays í Southampton, Englandi upp á 664.100 evrur. Tilboðið var langlægst af þeim þremur sem send voru inn og um helmingi lægra en næstlægsta tilboðið. Hin tvö fyrirtækin […]
Halldór Jóhann ekki til ÍBV

Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari kvennaliðs Fram hefur verið orðaður við þjálfarastöðu karlaliðs ÍBV. Hugmyndin var að hann myndi taka við af Arnari Péturssyni, sem ætlar að leggja þjálfaraflautuna á hilluna eftir tímabilið og að Halldór myndi starfa við hlið Gunnars Magnússonar. Nú er hins vegar ljóst að Halldór Jóhann kemur ekki til Eyja næsta vetur […]
ÍBV sendi trefla á minningarathöfn vegna Hillsboroughslyssins

Í gær, 15. apríl var þess minnst að 25 ár eru liðin frá hinu hræðilega slysi á Hillsborough leikvangi í Englandi þar sem 96 aðdáendur Liverpool tróðust undir í mannþrönginni og létust í einu versta slysi í sögu Englands og íþróttasögunni. Minningarathöfnin fór fram á heimavelli Liverpool, Anfield en mikið hefur verið fjallað um slysið […]
Jákvæður rekstrarafgangur sjötta árið í röð

Ársreikningar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2013 hafa nú verið birtir. Heildar rekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu 4.126 m.kr. og rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði námu 3.573 m.kr. Rekstrarafkoma samstæðu fyrir fjármagnsliði var því jákvæð um 553 milljónir að því að fram kemur í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. �?ar segir jafnframt að ársreikningar 2013 bera það með sér að rekstur Vestmannaeyjabæjar […]
Mikið áfall fyrir kvennalið ÍBV

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu varð fyrir miklu áfalli á dögunum þegar í ljós kom að hollenski varnarmaðurinn Kim Dolstra sleit krossband í landsleik. Kim gekk í raðir ÍBV í vetur og hugðist spila með liðinu í sumar en hún var nýkomin inn á í landsleiknum þegar hún varð fyrir meiðslunum, eftir því sem fram kemur […]